|
|||||||||||||||||||
|
28.3.06
Ljúfa líf, ljúfa líf!Seinustu 2 dagar hafa verið ansi ljúfir hjá okkur skötuhjúunum. Höfum eiginlega bara haft það gott upp í sófa á milli þess sem við gluggum aðeins í skólabækurnar. Ég er nefnilega að fara í próf næsta mánudag (3.apríl) og svo aftur 7.apríl svo að ég þarf að halda vel á spöðunum! Í gær tókst mér þó að lesa einu 2 kaflana í bókinni sem voru EKKI til prófs - óska sjálfri mér til hamingju með það. Hugga mig þó við að þeir voru hreint út sagt áhugaverðir svo að ég græt það ekki mjög! Ég er líka búin að sýna nýjar hliðar á mér seinustu daga. Ég er nefnilega búin að elda 2 daga í röð! Þetta finnst fæstum vera merkur árangur en á mínu heimili telst þetta vera afrek út af fyrir sig sér í lagi í ljósi þess að maturinn heppnaðist afbragðs vel í bæði skiptin! Sveinbjörn er oft ansi hreinskilinn þegar kemur að matseld en þessi tvö skiptin hefur hann bara sleikt út um og hrósað mér í hástert. Við kvörtum ekki yfir því! Í gær eldaði ég líka bara það sem mér datt í hug, fór ekki eftir neinni uppskrift og gerði satt best að segja bara eitthvað. Var að útbúa ofnbakaðar Burrito - eitthvað sem ég hef aldrei gert áður og þær heppnuðust svona líka vel - eiginlega bara alveg eins og á Red Chili ;) Í kvöld verður svo pizza í matinn og á morgun stefni ég að því að elda fisk í fyrsta skipti. Hugsa að ég verði almennileg við sambýlismann minn og sjóði hann bara þar sem það er jú uppáhaldið hans! Gott að ég sé aldrei á 4 og hálfu ári búin að elda uppáhaldsmatinn hans...ömurleg kærasta er ég! Hingað til hefur nefnilega eldamennska ekki verið mín sterkasta hlið - eiginlega jafn léleg að elda og ég hef verið dugleg að baka. Hugsa þó að þessi þróun sé af hinu góða fyrir línur okkar hjúanna - á meðan ég elda eitthvað hollt þ.e.a.s! Annars finnst mér oft alveg svínslega dýrt að elda handa 2 - það borgar sig oft á tíðum ekki en ég ætla að reyna að sýna hliðar hinnar hagsýnu húsmóður, ég veit að hún blundar einhvers staðra í mér! Í gær fór ég í rýnihóp á vegum Gallup - var að ræða um kosti og galla Netbanka Íslandsbanka og fékk að kynnast einhverri nýjung sem bankarnir eru að fara að setja á stofn innan skamms - leist hreint út sagt ekki á hana. Þetta er tæki sem er álíka stórt og strokleður (ekki boxy þó) og maður þarf að ýta á takka á hliðinni til að fá handahófskenndan kóða sem maður þarf svo að slá inn undir notendanafninu og lykilorðinu sínu í netbankann. Þetta á að tryggja öryggi notenda til muna en við vorum öll sammála um að þetta yrði til þess að við notuðum bankann talsvert minna. Ég er ekki hrifin af því að vera með eitthvað svona tæki til viðbótar við símann, veskið og lyklana. Þetta á þó að vera á formi lyklakippu en ég hugsa að ég myndi bara geyma þetta heima og nota þá bara netbankann heima hjá mér - sem er svo sem nóg! Ég fékk síðan 5000 króna gjafabréf í Smáralind fyrir og ætla glöð í hjarta að kaupa mér buxur einhvern tímann á næstunni - vúhú :) Fínt að hafa afsökun til að ÞURFA að kaupa sér buxur! En lærdómurinn bíður mín - fullt af köflum eftir sem ég þarf að lesa og á að lesa! Kveð því að sinni, Hafdís skrifaði klukkan 12:20 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||