20.3.06
Helgin!

Helgin var með rólegra móti en þó með eindæmum góð. Við fengum góða gesti í heimsókn á föstudaginn, Bergur kíkti í heimsókn ásamt Robba og Önnu sem voru einu sinni í frjálsum. Skötuhjúin gerðu betur og tóku hundinn sinn með sér, Pjakk, hann er ekkert smá sætur og heillaði því húsfrúnna upp úr skónum. Þetta var líka í fyrsta skipti sem að gæludýr kíkti í íbúðina og því var gaman að sjá hann vaða út um allt og skoða - greinilega spenntur að koma á nýjan stað!

Við gripum í spil eins og okkur einum er lagið og þar tókst mér hið ógerlega - ég vann! Ekki oft sem það gerist. Og það sem meira er - ég klekkti á hinum. Stal borgum, stigum og verlsunarvöru (Carcasonne) og lét öllum illum látum. Ég var líka lúmsk og átti bónda á stöðum sem engum datt í hug að kæmu sér vel fyrr en í lokin! Já, ég held að Dr.Bjössi hefði verið stoltur af mér! Ég tók því líka bara eins og kona þegar einhver gerði eitthvað á minn hlut - ég er greinilega að þroskast sem spilakona!

Laugardagurinn fór svo í videogláp og huggulegheit. Seinni partinn fórum við svo heim til foreldra minna þar sem ég sýndi góða takta í eldhúsinu. Mamma bauð fósturmóður minni og Ellen í mat (fósturmóður mín= mamma hennar Ellenar). Mamma eldaði einn besta mat sem ég hef á ævi minni smakkað - umh.... Það var appertizer og fordrykkur. Síðan var rjómalöguð sveppasúpa í forrétt, Rib eye (lambakjöt) með sætum kartöflum, salati og sveppasósu í aðalrétt og að lokum kaka og ís í eftirrétt. Undirrituð átti þó mestan heiður af eftirréttinum sem bragðaðist bara nokkuð vel þó ég segi sjálf frá. Ég át sem sagt á mig gat! Ofsalega gott!
Við Sveinbjörn fórum síðan bara heim og spiluðum Carcasonne við hvort annað fram á nótt og sváfum síðan vel út - ofsalega notalegt!

Í gær tókum við svefnherbergið í gegn - þrifum það hátt og lágt, þvílíkur munur og notuðum svo restina af deginum í lestur. Ég held bara að einbeitingin mín sé komin heim úr fríi - notalegt! Í tilefni þess hrissti ég eins og eitt stk. fyrirlestur fram úr erminni og eina skýrslu í þokkabót. Húrra fyrir mér!

Ég hef heldur ekki gleymt hjólinu neitt aftur, ekki reynt að læsa útidyrahurðinni með bíllyklinum og varla gert neitt af mér að ráði síðan ég veit ekki hvenær svo að ég hugsa að heilinn sé líka kominn tilbaka - ég fanga honum að sjálfsögðu!

Annars er það helst í fréttum að Léttkolsýrði Kristallinn með Mexican-Lime bragðinu er afar góður! Næst á dagskrá er að smakka græna Toppinn með Lime bragðinu! Jább, það er BRJÁLAÐ að gera!

Hafdís skrifaði klukkan 3:26 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli