16.3.06
Heimskupör Hafdísar 17.kafli

Ég er að fara að sjá um umræðutíma í einu fagi á mánudaginn og mætti því galvösk upp í skóla snemma í morgun til að hitta meðstjórnanda minn. Ég fór á reiðfáknum mínum eins og svo oft áður, var auðvitað á seinustu stundu eins og vanalega og harðsperrur gærdagsins urðu til þess að hjólið virkaði svo heillandi miðað við þessa tvo jafnfljótu.
Sveinbjörn kemur svo heim í hádeginu og skilur ekkert í því að ég sé heima og spyr mig hvar hjólið sé! Ég skil ekkert í vitleysunni í honum og segi að það sé úti. Hann þykist ekki hafa séð það svo að ég fer út í glugga til að benda honum á það en átta mig svo eftir smá stund að ég hafi e.t.v gleymt að hjóla á því heim frá Odda.

Stundum held ég að ég myndi gleyma hausnum á mér ef hann væri ekki fastur við restina af líkamanum!

Í þetta skiptið get ég heldur ekki falið mig á bak við svefnleysi þar sem ég svaf ágætlega í nótt! Ég er reyndar svakalega þreytt og er búin að vera eitthvað slöpp en það gefur heilanum ekki ástæðu til að vera fjarverandi!

Spurning hvort hann sé í fríi á Krít með einbeitingunni minni - helvískur!

Hafdís skrifaði klukkan 1:41 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli