10.3.06
Heil og sæl,

Það er búið að vera ansi mikið að gera hjá mér seinustu daga. Ég er búin að vera að undirbúa smá teiti sem ég held ég morgun - að ýmsu að huga og því hef ég verið á smá flandri undanfarið!

Ég þurfti tvær ferðir til að finna mér eitthvað til að vera í- tískan í dag er ekki fyrir mig. Ég er ekkert sérstaklega hrifin af púffermum og öðru slíku - það gerir mig ekkert sérstaklega fína! En ég endaði þó á því að finna mér afskaplega falleg föt!

Í dag er ég búin að vera upptekin af því að græja veitingar og þrífa. Það tekur allt lengri tíma en ég ætla og skipulagning er því ekki mín sterkasta hlið ;) En þetta er allt að koma.

Ég fer svo í langþráða klippingu á morgun - hlakka svakalega til!

Annars er próf hjá mér á mánudaginn - hef áhyggjur af því síðar. Þakka guði fyrir að vera fljót að læra ;)

Em ég þarf að fara að græja mig á æfingu - læt heyra betur í mér á sunnudag!

Hafið það gott!

Hafdís skrifaði klukkan 4:31 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli