13.3.06
Ég átti góða helgi.

Ég hélt upp á afmælið mitt á laugardaginn í góðra vina hópi. Það heppnaðist afbragðs vel og flestir skemmtu sér konunglega. Ég var á meðal þeirra og naut kvöldins til hins ítrasta. Ég fékk margar góðar gjafir og hver þeirra endurspeglaði hversu vel vinir mínir þekkja mig og um leið hversu góða vini ég á - já það er yndislegt alveg hreint ;)

Takk fyrir mig!

Í kjölfarið má segja að ég hafi sannað að maður þarf að sofa nógu mikið til að grunnheilastarfsemi sé virk. Ég reyndi nefnilega að læsa húsinu með samlæsingunni af bílnum! Hversu utan við sig þarf maður að vera til þess? Svefn er nauðsynlegur!

Ég ætla eyða deginum í leti og videogláp - finnst ég alveg eiga það skilið!

Hafið það gott í dag elskurnar!

Hafdís skrifaði klukkan 1:05 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli