|
|||||||||||||||||||
|
7.3.06
Ég á það til að vera ofsalega sérstök - ég fæ alla vega að heyra það ansi oft. Ég var að baka í dag, aldrei þessu vant, og á einhvern fáránlegan hátt tókst mér að setja meira hveiti á sjálfa mig heldur en í skinkuhornin sem ég var að baka. Auk þess tókst mér á annan fáranlegan hátt að gera eitthvað fatlað deig sem var blautara en vatn og því ómögulegt að gera nokkurn skapaðan hlut við það. Þið getið ímyndað ykkur hvað ég var skapgóð á meðan þessu stóð! Móðir mín var líka búin að leggja mér línurnar í penleika - þrátt fyrir fögur fyrirheit er mér alveg lífsins ómögulegt að búa til eitthvað pent. Ætli ég eigi ekki eftir að eignast 20 marka barn þegar þar að kemur - shæsinn! Allt sem ég geri endar á því að vera stórt og klossað. Mér tókst reyndar að búa til nokkur lítil en flest voru svona helmingi stærri en ég ætlaði að hafa þau - samt fór ég alveg eftir uppskriftinni (held ég) og skar í jafn marga bita og bókin lagði til og móðir mín á hinum enda línunnar! Ég er augljóslega bara með þumalputta! Auk þess tókst mér að troða hveiti út um allt, brenna mig á sjóðandi plötu svo að ég fæ ferlegt ör og skíta út allar skálarnar sem ég á til og setja slatta á gólfið um leið - ég er snillingur! Á stundum sem þessu vildi ég óska að ég væri líkari mömmu minni - í staðinn er ég alveg eins og pabbi hvað þetta varðar og ekki er hann penn! Ljótu brussugen! Ég er að hugsa um að ræða þetta við Kára! Hafdís skrifaði klukkan 8:20 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||