20.3.06
Ertu ólétt?

Þessi spurning kemur mér alltaf jafn mikið á óvart. Fullyrðingar þess efnis að einhver eigi von á barni út af íbúðakaupum með aukaherbergi, stærri bíl og einhverju álíka eru fáránlegar að mínu mati. Í fyrsta lagi finnst mér asnalegt að fólk áætli að 3-4 herbergja íbúðir séu bara keyptar af barnafólki nú eða fólki sem á von á barni. Sumir vilja hafa aukaherbergi fyrir sig nú eða áhugamálin sín eða eru að hugsa til framtíðar, ekki nútíðar. Í öðru lagi finnst mér fáránlegt að stærri bíll þýði um leið stækkun á fjölskyldu - afhverju? Kannski er gott að geta flutt dót úr Ikea heim í bílnum sínum, nú eða flutt fleiri en 2 poka af flöskum og dósum í endurvinnsluna! Það sem mér finnst samt hallærislegast af öllu er þegar fólk spyr konur hvort þær séu óléttar. Ef að svo væri myndi viðkomandi þá ekki segja þér frá því? Það er kannski allt í lagi að spyrja þegar það er kominn áberandi kúla og þú ert alveg með á hreinu að viðkomandi hefur ekki bara fitnað svona mikið en annars finnst mér þessi spurning bara asnaleg.

Fólk kemur ekki til með að svara þér hreinskilnislega fyrr en eftir þessar öruggu vikur (12 held ég) og því er þetta bara algjörlega tilgangslaus spurning. Hún fær fólk annað hvort til að ljúga að þér nú eða halda að það sé farið að fitna eða þaðan af verra!

Ég get lofað ykkur því að ég kem til með að láta vita af fjölgun í fjölskyldunni, það að ég drekki lítið er ekki ávísun á þungun þar sem ég haf aldrei talist mikil drykkjunkona og stærri íbúð og bíll með skotti þýða ekki að við séum að undirbúa okkur undir nýjan grís!

Ástæða þessara skrifa minna eru margar vangaveltur vina minna um hvort að ég sé ólétt, hvenær ég verði ólétt og leiði á þessari spurningu!

Ég vona því að þið bíðið bara þolinmóð eftir því að ég tilkynni um væntanlega fjölgun, hvenær sem hún verður! Annars á ég nú þegar 2 gullfalleg börn með Gunnhildi og þau duga mér vel í augnablikinu!

Takk fyrir!

Hafdís skrifaði klukkan 3:18 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli