1.3.06
Það er komið að því!

Dagurinn sem ég hef hálfpartinn verið að kvíða fyrir undanfarin ár. Dagurinn sem ég hélt að yrði svo hræðilegur!

Þegar ég var yngri gat ég varla sofið fyrir spenningi - reif mig á fætur fyrir allar aldir til að athuga hvort ég hefði ekki örugglega stækkað eitthvað um nóttina. Í nótt var ég stressuð - reyndar alls ekki yfir því að vera gömul heldur var ég stressuð yfir því að ritgerðin mín væri ekki nógu góð. Vangaveltur varðandi hana ásóttu mig í alla nótt og mér fannst ég því ekkert hafa sofið - mesta lagi 10 mín.

Þegar nær dró deginum áttaði ég mig á því að hann er ekki á neinn hátt frábrugðin hinum dögunum MÍNUM. Ég hef reyndar fengið jafn mörg sms í dag og ég fæ vanalega í hverri viku - gleðilegt!

Hafdís skrifaði klukkan 10:05 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli