26.3.06
Eðalhelgi að baki! Guðmundur Gígjar (2,5 ára) vinur okkar Sveinbjörns kom í heimsókn til okkar seinni part föstudags og dvaldi fram á laugardag. Hann bræddi okkur að sjálfsögðu alveg með skemmtilegum söng, sögum og krúttlegheitum. Honum fannst afskaplega skrýtið að Sveinbjörn skyldi leggja sig seinni part laugardags þar sem það var enn dagur - dagur hjá honum þýðir bjart úti. Þetta tilkynnti hann mér líka hátíðlega kl.7.30 á laugardagsmorgun þegar ég var búin að reyna að láta hann leggja sig soldið - það var sko kominn dagur! Strákurinn greinilega ekki alveg á sama tímabelti og ég...Ég sendi foreldrum hans samúðarkveðjur í sumar þegar það verður ALLTAF dagur og hann vakandi allan sólarhringinn þar sem hann fer jú ekki að sofa þegar það er ennþá dagur (sagði það alla vega við mig kl.20.30 á föstudagskvöldið). Ég gat að sjálfsögðu ekki mótmælt því og leyfði litla grísnum að vaka soldið lengur!

Einkennislag helgarinnar er án efa titillagið á 3 disknum um kappann hann Bubba sem byggir. Sá diskur fékk að rúlla nokkrum sinnum í bakgrunni - það oft að ég kann hann nánast utan að! Hann var samt mjög stilltur þessi elska og neitaði að fara heim á laugardeginum - það er auðvitað brjálað stuð að vera hjá mér. Ég get verið mjög skemmtileg - sérstaklega í hlutverki Súperman með skikkju hlaupandi út um allt hús.

Þrátt fyrir að hafa vaknað á ókristilegum tíma til að horfa á barnasjónvarpið, sem er á meðan ég man ekki næstum eins skemmtilegt og þegar ég var lítil - þroski kemur málinu ekkert við þar sem ég er enn með þroska á við 5 ára, hindraði það naglann hana mig ekki í að fara á brjálað djamm á laugardaginn. Brjálað er í minni orðabók djamm sem endar með því að ég fer niður í bæ og er ekki komin heim fyrir 3 - þið lásuð rétt. Hörkutólið ég var ekki komin heim fyrr en 4.30, geri aðrir betur! Eva Rós - þú mátt ekki svara þessu!

Við sálfræðiskvísurnar hittumst heima hjá Agnesi og létum vægast sagt eins og bjálfar. Afrakstur þess má glögglega sjá á myndum frá kvöldinu. Því miður gleymdi ég myndavélinni heima og get því ekki sýnt ykkur 12000 myndir af mér með Zoolander-svipinn - veit að þið hefðuð gaman af því en þó örugglega ekki eins gaman af því og af myndbandinu sem er til af mér vera að syngja og dansa við Eitt lag enn...ég veit - SVEKKELSI!

Þetta var alla vega hörkufjör og koffíntaflan sem ég tók snemma um kvöldið kikkaði all hressilega inn svo að ég reitti brandarana af mér. Hafdís reitir brandara af sér= hvað sagði appelsínan við hina sem datt ofan í vatnið? ,,Fljót! Skerðu þig í báta". Jább, þetta er uppáhalds brandarinn minn um þessar mundir og mér til mikillar ánægju fór helmingur partýgesta að hlæja - það er talsvert góður árangur þegar tekið er tillit til þess að ég er ekki fyndin nema þegar Sveinbjörn segir sögur af mér! það er sem sagt meira stuð að hlæja að mér en af - eða er það öfugt?

Dagurinn í dag hefur farið í allsherjar leti og lufsugang. Ég er þó búin að druslast í sturtu - neyddist til þess snemma í morgun sökum vibbafnyksins af þessum viðbjóðs sígarettum. Hlakka ekki lítið til að fá þetta reykingabann, þá fyrst verð ég ánægð með störf ríkisstjórnarinnar! Áðan sýndi ég síðan mínar bestu hliðar og reiddi fram dýrindis kjúklingarétt með pestó og fetaosti og öðrum eins munaði. Hann var mjög góður þó ég segi sjálf frá og verður án efa aftur á boðstólnum síðar. Það sakaði heldur ekki hvað hann var yndislega einfaldur - gott fyrir brussur eins og sjálfa mig!

Sem sagt eðalhelgi í góðra vina hópi - takk fyrir skemmtunina stelpur!

Næsta helgi verður væntanlega ekki síðri þar sem okkur er boðið í 25 ára afmæli til Gauta vinar okkar - hugsa að það verði stuð! Jább, það er allt að gerast! Síðan er víst próf hjá mér á mánudeginum og föstudeginum eftir það svo að ég þarf að bretta upp ermarnar í þeirri næstu. Það sem eftir lifir kvölds fer hins vegar í Boston Legal og Threshold!

Góðar stundir,

Hafdís skrifaði klukkan 9:06 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli