25.2.06
Við skötuhjúin ætlum að gera eitthvað okkur til skemmtunar í kvöld. Í tilefni þess ákváðum við að smella okkur eitthvað út að borða og vorum að þræta um hvert ætti að fara - hvorugt okkar er gott í að taka ákvarðanir og því geta einfaldir hlutir sem þessi endaði í 3 tíma umræðu! Ég veit að þetta er vandamál!

Í sakleysi mínu skellti ég mér inn á hrói.is til að sanna fyrir Sveinbirni að það væri hægt að borða þar fyrir minna en 2500 krónur (veit ekki afhverju það var budget). Ég tapaði því veðmáli - hefði þurft að fá mér 9" margarítu til að sleppa!

Hvet alla sem vilja skemmta sér að smella á þessa síðu http://www.hroi.is Munið bara að vera með hátalarana í góðri stillingu og hlýða vel á SNILLDAR textann.

Ég hló alla vega af þessu - eitt það lélegasta sem ég hef heyrt í svona auglýsingarlögum!

Góða skemmtun!

Hafdís skrifaði klukkan 6:50 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli