|
|||||||||||||||||||
|
6.2.06
Long time no see!Í fréttum er þetta helst: -nágrannarnir í neðra hafa slitið samvistum og flutt út úr íbúðinni. Við hjá FSE (Fréttastofu Eggertsgötu) teljum því að mikil gúrkutíð verði í fréttamennsku næstkomandi mánuði! Þessar fregnir bárust okkur til eyrna fyrir nokkrum vikum síðan og þær útskýrðu heilmargt! Við vorum nefnilega svo hissa yfir því hversu hljóðlát þau gætu orðið þegar þau væru að vanda sig - það hlaut að vera eitthvað...Stúlkukindin háværa flutti út fyrir einhverju síðan - blessuð sé minning hennar! Núna stendur íbúðin sem sagt auð en til að minnast þeirra í neðra tóku þau í efra að sér að dúndra rúmgaflinum örlítið í vegginn í gær, samt mun hljóðlegra en þeirra í neðra var von og vísa og glöddumst við skötuhjúin mikið við þetta og rifjuðum í kjölfarið upp góðar minningar af hávaða. Þeirra verður sárt saknað! -ég er búin að þjást af einhvers konar vírus undanfarið (að ég held, sjúkdómsgreind af sjálfri mér og móður minni sem veit allt). Sjúkdómurinn lýsir sér í miklum höfuðverkjaköstum sem koma helst þegar ég á síst von á þeim, til dæmis þegar ég er að reyna að sofna. Auk þess er ég með mikla liðverki, sér í lagi í hnjám, úlnliðum og öklum. Hnéin eru næstum búin að drepa mig en ég læt þau ekki buga mig þrátt fyrir það og lem þau bara til hlýðni - það er það eina sem dugar. Auk þess hafa bólgueyðandi töflur verið minn helsti félagi undanfarið. -af þessum sökum hefur lítið orðið úr próflestri sem átti að fara fram um helgina. Einbeitingin mín flaug líka til heitari landa eftir jólin og hefur ekki látið sjá sig aftur. Hennar er sárt saknað (þetta er ekki kaldhæðni eins og hitt saknið). -Ég tók Silvíu Nótt gjörsamlega í sátt á laugardaginn. Sat stjörf fyrir framan sjónvarpið og brosti, hló og dillaði mér til skiptis. Þessi elska heillaði mig alveg uppúr skónum með skemmtilegheitum og fíflaskap. Hún er töff, töff, töff! Annars langar mig að bæta aðeins við umræðuna sem hefur skapast í kjölfar lekans. Fyrir mitt leyti finnst mér ekkert sanngjarnara að lögin sem hafa nú þegar komist áfram séu á rúv.is og hver sem er geti hlustað á þau aftur og aftur og þannig vanist laginu betur og kunnað betur að meta það þar sem lögin sem á eftir koma fá ekki næstum eins langan tíma til þess! Ég skil ósköp vel að einhverjir séu fúlir. Sjónvarpið hefði í raun átt að smella hinum lögunum á netið líka sama dag svo að allir hefðu verið jafnir! Skil ekki afhverju ég er ekki í útvarpsráði! Bíð mig fram á næsta ári! -ég þarf víst að fara að einbeita mér að lærdómi. Lífeðlisfræði bíður mín, eitt af þeim fögum sem er EKKI mín sterkasta hlið! Fleira er ekki í fréttum að sinni! Hafdís skrifaði klukkan 11:29 f.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||