13.2.06
Lán í óláni

Dagurinn byrjaði frekar ,,hressilega" hjá mér í morgun. Ég var að læra til rúmlega 3 í nótt. Skyndipróf hjá mér í tíma kl.9.40 og þar sem einbeitingin mín er enn ókomin úr heimreisunni gekk mér eitthvað lítið að lesa um helgina, þrátt fyrir MJÖG svo fögur fyrirheit.

Það var því heldur þreytuleg ung stúlka sem REIF sig á lappir rúmlega 9 í morgun. Cherriosið bætti, hrestti og kætti og því tókst mér að drattast í Háskólabíó - reyndar soldið seint og illa en þó! Ég kunni ekki við að fara að troðast 10 mín. eftir að tíminn byrjaði og hlammaði mér því bara í tröppurnar! Þrátt fyrir mikla umfram mýkt á rassinum verð ég að vara fólk við því að sitja lengi í tröppum með tölvuna á fótunum - það er ekki ýkja þægilegt! Ég tók þó prófið í sæti og gekk bara svona lala. Klúðraði reyndar einni spurningu sem ég vissi - ég einfaldlega mundi ekki hvernig dreifilinsa er á ensku og þurfti því að giska á annað af tveimur og að sjálfsögðu valdi ég rangan kost - what else is new?

Ég var svo afskaplega skynsöm í morgun þegar ég græjaði mig og ákvað að taka með mér hollystu í nestið. Er í skólanum frá 9.40 - 16. á mánudögum og ákvað að vera soldið hollystuleg svona í eitt skipti fyrir öll. Tók með mér banana og afgang af salatinu sem var með kvöldmatnum í gær. Smellti reyndar smá furuhnetum á salatið og ákvað svo að setja smá fetaost og olíu út á til að krydda þetta örlítið! Festi síðan lokið vel á og setti plastpoka líka til öryggis!

Rúmlega 12 var ég búin í umræðutíma og ákvað þá að fara ekki í tímann eftir hádegi þar sem sá tími er iðulega mjög gagnslaus þar sem kennarinn þylur bara upp það sem stendur á glærunum og mér finnst ég alveg geta lesið það sjálf! Ég dreif mig því heim og ákvað að borða salatið mitt í hádegismat! AUÐVITAÐ, hafði dallurinn sem salatið var í lekið, í gegnum pokann og út um allt í fínu, fínu skólatöskuna mína! Þó að fetakostur sé bestur í heimi þá finnst mér hann ekkert voða góður í töskunni minni!

Þar sem það er ekkert auðveldast í heimi að ná olíu úr einhverju og hvað þá olíu með osti í ákvað ég að drífa töskuna bara beint í þvottavélina og smellti nokkrum lítrum af blettahreinsi ofan í áður! Hún virðist hafa þolað þá þeysireið af þar sem hún er nánast eins og ný þessi elska - ennþá! En ég þori ekki að koma með neinar yfirlýsingar áður en hún hefur náð að þorna!

Í öllum þessu basli mínu tókst mér að sjálfsögðu að troða olíu í bolinn minn,peysuna mína og sokkana og slatta á gólfið sem er núna voða hált og skemmtilegt!

Ég uppgötvaði svo mér til ánægju að kennarinn sem átti að kenna mér eftir hádegi (sá sami og prófaði mig í morgun) sendi póst korteri eftir að tíminn byrjaði um að hann væri veikur og kennsla myndi því falla niður í dag! Hefði ég verið pirruð að labba upp í Háskólabíó til þess eins að sjá miða um að hann myndi ekki kenna - nú eða það sem verra er, bíða í korter til að fá svo tölvupóst um það! Gott að það var einhver ,,heppni" með mér í dag!

Af þessu er sem sagt hægt að læra að það er ekki gott að setja olíu í dall sem er ekki með traustu loki, það á ekki að uppgötva leka í tösku út á miðju gólfi og rífa allt uppúr henni þar til að bjarga bókunum og það sem mikilvægara er - tölvunni! Það á frekar að halda ró sinni - labba að næsta vask og týna uppúr henni þar! Auk þess er ekki sniðugt að leyfa einbeitingunni sinni að fara í frí til útlanda - henni gæti líkað of vel og neitað að koma tilbaka!

Varist fetaost og einbeitingarskort!

Góðar stundir,

Hafdís skrifaði klukkan 1:45 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli