1.2.06
Hvert hafa dagar lífs míns lit sínum glatað?

Ég er með svona u.þ.b 14 blöðrur á fótunum! Og hef í kjölfarið komist að þeirri niðurstöðu að það er í fyrsta lagi ekki gott að kaupa marga nýja skó á sama tíma. Í öðru lagi að það er ekki gott að kaupa sér íþróttaskó sem passa akkúrat og reyna að troða innleggjum í þá og misþyrma fótunum ofan í! Í þriðja lagi geta hælaskór verið góðir fyrir blöðrurnar á hælunum en þeir gera ekki góða hluti fyrir tábergið sem var ekki aumt fyrir! Þetta eru niðurstöður dagsins!

Önnur vísindaleg tilraun átti sér stað í dag þegar Sveinbjörn nokkur Jónsson athugaði á mjög svo vísindalegan hátt hvort vogin okkar sýndi meira eða minna heldur en vog Sundhallarinnar og ef svo væri hverju myndi muna! Niðurstöður þessarar rannsóknar voru óyggjandi og leiddu í ljós að baðvogin okkar sýnir 600 gr. of mikið!

Ég hef reyndar ekkert notað hana í MJÖG langan tíma - kannski þess vegna hefur fita ekki verið áberandi umræðuefni hjá mér. Þið getið þakkað mér síðar!

Annars á handbolti hug minn allan þessa dagana. Ég sat stjörf fyrir framan sjónvarpið í gær og tapaði mér næstum. Gott að þetta er sýnt á RÚV en ekki einhverri hallæris stöð sem við erum ekki með því að við skötuhjúin erum ekki húsum hæf á meðan leik stendur - lætin í okkur eru þvílík! Það var meðal annars stappað á okkur í gær - já, við vorum það hávær að nágranni okkar sá sér ekkert annað fært í stöðunni en að stappa niður fótunum. Við lokuðum þá bara gluggunum og héldum áfram að æpa. Einfalt-þægilegt-öruggt! Við nánari umhugsun komumst við þó að því að e.t.v hefði sá hinn sami bara verið að fagna markinu eins og við - það er e.t.v líklegri skýring en ég held mig við þá fyrri - ég er jú þekkt fyrir að vera hávær!

Jú og smá upplýsingar fyrir aðdáendur fetaosts:
Nýji fetaosturinn frá Mjólku er ekki næstum eins góður og sá gamli góði! Ég er búin að kanna þetta til þaula og búin að prófa ostinn með ýmsum mat! Það er líka hlutfallslega of mikið af olíu á þeim osti - ég er meira hrifin af ostinum sjálfum þó að olían sé líka alltaf voða góð! Ég hef reyndar bara smakkað Mjólku-ostinn í olíunni. Þarf kannski að skoða þetta soldið betur áður en ég alhæfi!

Fleira er ekki í fréttum að sinni,
Verið þið sæl!

Hafdís skrifaði klukkan 3:32 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli