2.2.06
Hádí!

Það er ekki mikið að frétta úr vestari hluta bæjarins þessa dagana! Ég fór í einn gagnlausasta tíma sem ég hef farið í í morgun! Það var verklegur tími í forritinu SPSS en ég tel mig kunna ansi vel á það forrit eftir nokkra kúrsa. Ég er að taka þetta fag aftur til að laga meðaleinkunina mína soldið. Ég er í 2 ,,gömlum" fögum núna sem ég þarf að taka aftur - rosa stuð! Það er reyndar ansi skondið að heyra kennarann segja sömu brandarana aftur 2 árum seinna. Annars kúrsinn hefur reyndar breyst talsvert. Kennarinn í hvítu buxunum kennir hann og hans sérgrein er að lesa beint upp af glærunum sínum. Í byrjun næsta tíma eyðir hann rúmlega klukkutíma í að rifja upp það sem hann sagði í tímanum á undan svo að það er nóg að mæta bara í fyrsta klukkutíma hvers tíma án þess að missa af NEINU! Hressandi!
Svo að ég komi mér aftur að efninu snérist þessi verklegi tími um grunnkunnáttu á þessu forriti og þegar ég var búin að gera verkefnið tvisvar áður en strákurinn við hliðina á mér var búin að opna forritið (sem hann gat með því að spyrja mig) ákvað ég (með leyfi kennarans) að fara bara heim! Notalegt að græða hálftíma á því að vera klár!

Annars kláraði ég það sem ég ætlaði að gera fyrr í vikunni í dag. Þvoði þvott, pússaði allt inn á klósetti og ryksugaði ásamt því að skrúbba bæði eldhúsborðið og stofuborðið! Nokk ánægð með sjálfa mig! Annars er ég voða drusluleg um þessar mundir, farin að halda að ég þjáist af fimmtudagsveiki en ætla að harka af mér og smella mér á æfingu. Grunar að hún hressi,bæti og kæti!

Það er svo próf á dagskrá hjá mér á þriðjudaginn og ég á eftir að læra heilan helv...helling svo að helgin verður hressandi! Ætla mér þó að gera eitthvað skemmtilegt inn á milli!

Hafið það gott mín kæru!

Hafdís skrifaði klukkan 4:35 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli