19.2.06
Hawdy!

Ég er ekki alveg dauð úr öllum æðum enn - hef bara varla haft tíma til að vera í tölvunni undanfarið! Ég er búin að vera að þvælast niður í Frjálsíþróttahöll meira en góðu hófi gegnir seinustu daga. Þessa helgi fer fram Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum og þar er að sjálfsögðu mikið fjör! Við skötuhjúin vorum ráðin til að starfa við langstökk og þrístökk karla og kvenna. Svakalegt stuð! Það er ágætt að starfa við svona mót en gallinn við það er að mega ekki hvetja sitt fólk áfram. Ég þurfti að sitja voða pen í gær á meðan félagar mínir voru að hlaupa, stökkva, kasta og bæta sig - það er erfitt fyrir málgefna konu eins og sjálfa mig sem hefur gaman af því að öskra á fólk (og mega það).

Við vorum þó helst til lengi í höllinni í gær, vorum mætt um 11.30 og fórum ekki fyrr en að ganga 17. Það var því ekki mikið um lærdóm hjá mér í gær!
Ég horfði svo á söngvakeppnina með öðru auga í gær - fannst lögin betri þegar ég heyrði þau svona öll saman í hnapp heldur en þegar öll leiðinlegu lögin voru inn á milli! Það voru þó nokkur þarna sem mér fannst voða lítið til koma en svona lög venjast þó yfirleitt vel! Mér var líka eiginlega alveg sama hvað af svona ca. 4 lögum myndi vinna - sá fram á að hvert þeirra yrði okkur til sóma! Silvía vann síðan, kom væntanlega ekki mörgum á óvart, en rústið kom kannski einhverjum á óvart! 70000 atkvæði eru ansi mörg atkvæði! Mér fannst hún samt töff! Mér fannst samt líka Friðrik Ómar ágætur, sömuleiðis Ardís Ólöf - ég sá fram á að ensk útgáfa af hennar lagi yrði ágæt, Regína Ósk var náttúrulega svakaleg og svo mætti lengi telja! Annars fannst mér Páll Óskar og hinn homminn fyndnastir - gladdist mikið yfir söng þeirra beggja!

Sigga Beinteins átti síðan án efa hárgreiðslu kvöldsins - mér finnst hún líka töff að láta plata sig í svona vitleysu! :)

Ísland best í heimi!

Hafdís skrifaði klukkan 12:42 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli