|
|||||||||||||||||||
|
21.2.06
Ég skipti um mynd hérna efst á síðunni. Ég varð orðin dáldið leið á að sjá sjálfa mig í hvert skipti sem ég opna internetvafrann!Myndin sem prýðir haus síðunnar að þessu sinni var tekin á Ægissíðunni í lok nóvember. Mér fannst litagleðin á himnum svo falleg og Sigurjón yfirljósmyndari var ekki í bænum svo að ég ákvað að gera mitt besta til að festa herlegheitin á filmu. Það gekk svona upp og ofan. Mér finnst tvær af myndunum sem ég tók vera ágætar - þær minna mig alla vega á hvað mér fannst þetta fallegt sólsetur og þar með er tilgangnum náð. Ég áttaði mig á því að ég verð seint ljósmyndari - alltaf gott að vita það! Ég svissa svo örugglega yfir í hina myndina þegar ég verð orðin þreytt á þessari! Vona að þið verðið fegin að losna aðeins við að sjá greppitrýnið á mér í hvert skipti sem þið kíkið við! Blessuð! Hafdís skrifaði klukkan 11:58 f.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||