12.2.06
Þetta hefur verið afskaplega tíðindalaus helgi. Við höfum ekkert skemmtilegt gert - já, ég er örlítið bitur yfir því! Í gær fékk RÚV að skemmta okkur skötuhjúunum með tveimur EÐAl myndum - þær voru reyndar ágætis afþreying og því get ég ekki kvartað mikið yfir þeim!

Ég er að fara í próf á morgun og er búin að reyna að vera voða dugleg að læra. Það hefur gengið upp og ofan! Það er svo margt skemmtilegt sem er hægt að gera í stað þess að vera grafinn ofan í bókunum!

Ég horfði á upprifjunarþáttinn um Eurovision í gær og sannfærðist enn meira um það að öll lögin eru rusl nema lagið hennar Silvíu minnar! Reyndar finnst mér lagið sem Friðrik Ómar syngur líka vera svona lala en önnur eru eiginlega bara crap!

Rakel vinkona mín sem býr í Danmörku horfði á keppnina þeirra í gær og sagði mér að á heildina litið hefðu þeirra lög verið betri en okkar - get ekki sagt að það hafi komið mér á óvart. Ég horfði á lagið og fannst það bara svona lala - örugglega eitthvað sem venst vel en ekkert spes svona við fyrstu hlustun. Hún er bara 17 ára kvikindi sem kemst ekki með tærnar þar sem Silvía er með hælana!

Reyndar er ég ekkert viss um að Silvía eigi eftir að heilla Evrópu upp úr skónum en ég verð kát með hana sama hvernig fer! Annars er ég strax farin að velta fyrir mér hvernig er hægt að þýða textann yfir á ensku - hann er reyndar að hluta til á ensku nú þegar en...annars fyndist mér allt í lagi að syngja þetta bara á íslensku. Ég fíla lagið bara eins og það er!

Í dag byrjar Íslandsmeistaramótið í fjölþrautum. Ég er að hugsa um að taka mér smá pásu frá náminu og kíkja þangað! Síðan er ég að hugsa um að vera soldið myndarleg í kvöld og elda kjúklingarétt. Er eiginlega strax farin að vera svöng við tilhugsunina!

En þetta eru margar línur af engu - ætla að segja þetta gott í bili!
Lofa að koma með eitthvað krassandi eftir helgi!

Hafdís skrifaði klukkan 1:56 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli