9.2.06
Það er afskaplega lítið að frétta af mér! Það gerist ekki margt spennandi í mínu lífi þessa dagana. Ég er búin að vera hálf slöpp í rúma viku en er öll að koma til. Grunar að ég hafi fengið einhvern svefnvírus - nógu mikið hef ég alla vega sofið undanfarið! Ég dó næstum því úr þreytu á æfingu um daginn - hef aldrei verið svona þreytt eftir klín, en ég það jafnaði sig þegar ég neitaði að gefast upp og hélt bara áfram!

Ég er búin að vera á fullu að skoða íbúðir í vikunni. Ein besta vinkona mín er að fara að kaupa sér íbúð og þessi elska valdi mig sem fagurfræðilegan ráðgjafa. Mér finnst ég standa mig afbragðs vel að eigin mati! Við erum búnar að skoða 3 íbúðir á tveimur dögum og erum einróma sammála um hvaða íbúð okkur líst best á! Erum samt bara í frumskoðunarferðum. Ákveðum í framhaldinu hvort að okkur líst það vel á einhverja þeirra að við viljum taka spekinga með okkur á svæðið (smið og innanhúsarkitekt). Við erum ekkert svakalega mikið í því að spyrja leiðinlegra spurninga og stoppum ekki lengi við - samt alltaf gaman að vera í svona skoðunarferðum. Mig grunar nefnilega að það verði eitthvað í að ég fari að blæða í íbúð!

Árshátíð Sálfræðinema er um helgina - ég ætla EKKI að fara að þessu sinni. Ég er að fara í próf á mánudaginn og hef hvorki tíma né peninga til að fara. Ætla því bara að hafa það gott enn eina helgina! Annars vorum við líka búin að vera að velta fyrir okkur að smella okkur á Þorrablót með vinum okkar en af fyrrgreindum ástæðum ætlum við heldur ekki þangað! Ég bauð mig hins vegar fram sem barnapíu en fékk því miður ekki starfið - soldið svekkt yfir því!

Og já - ég á bestu foreldra í heimi!

Fleira er það ekki að sinni...

Hafdís skrifaði klukkan 11:13 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli