|
|||||||||||||||||||
|
10.2.06
DagamunurÉg gerði mér smá dagamun í dag. Smellti mér út að borða á kaffihús í hádeginu með Evu vinkonu minni. Við höfðum ætlað að gera eitthvað saman í langan tíma og létum verða úr því í dag. Kaffihúsið sem varð fyrir valinu heitir Svartakaffi og er á Laugavegi. Við höfðum áður farið þangað og fannst það ágætt og ákváðum að athuga hvort að það væri ekki ennþá svoleiðis! Það gladdi mitt litla hjarta óumdeilanlega þegar ég sá alla ,,bannað að reykja" miðana á borðunum. Hitt hefði heldur ekki verið gott þar sem Eva er kasólétt og því hefði ég þurft að berja mann og annan ef kaffihúsið hefði ekki verið reyklaust! Við fengum líka afskaplega góðan mat og vorum almennt bara ánægðar með þjónustuna. Mér fannst reyndar fúlt að fá 10 klaka í lítið vatnsglas, ég var þá alltaf bara þeim mun fljótari að klára vatnið og þurfti að fylla á nýtt á 3 mínútna fresti - jább, stórar stelpur þurfa mikið vatn! Við röltum síðan aðeins á Laugaveginum sem er nokkuð sem ég hef ekki gert í háa herrans tíð! Sem sagt afskaplega ánægjulegt hádegi og væntanlega það seinasta sem við Eva njótum bara 2 í langan tíma! Ekki það að lítið kríli minnki eitthvað ánægju mína af samvistum við hana - hugsa að það verði frekar öfugt ef það er hægt ;) Til að reyna að vinna upp smá myndarlegheit þá er ég að búa til pizzu og við skötuhjúin hyggjumst hjúfra okkur í sófunum í kvöld og hafa það afskaplega notalegt á meðan við horfum á Prison Break! Notalegt ekki satt? Hafdís skrifaði klukkan 6:09 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||