|
|||||||||||||||||||
|
23.2.06
Allt er þegar 100 er - eða hvað?Ég byrjaði að æfa á fullu fyrir nokkru síðan og er búin að vera alveg helv...dugleg þó ég segi sjálf frá! Tek Sigurbjörn Árna vin minn mér til fyrirmyndar og hrósa mér sjálf þegar enginn annar gerir það! (er meira að segja frekar dugleg við það þessa dagana). Ég er búin að mæta á allar æfingar, geri allt sem mér er sagt að gera þegjandi og hljóðalaust og kvarta ekkert (Kristín Birna er mér til fyrirmyndar í þeim efnum). Ég er búin að vera dugleg að taka lýsi og liðamín undanfarið og það hressir, bætir og kætir. Liðirnir mínir hafa því ekki verið eins stirrðir og aumir og áður og ég hef getað hlaupið meira en ég gat gert allan desembermánuð - hressandi! Ég hef meira að segja lætt mér út á morgunskokk einstaka sinnum, svona til að ná mestu fegurðinni af mér (fitunni það er að segja). Ég hef þó heldur minnkað það í þessari viku þar sem mér hefur fundist álagið á æfingum vera alveg nóg! Sjáum þó hvað setur þegar ég venst álaginu! Það er líka allt brjálað að gera í skólanum og ég svona óþægilega róleg yfir því! Þarf að fara að sparka all rækilega í rassgatið á mér! Hlýt að stressast soldið á morgun þar sem ég þarf að hrista eins og eitt stykki ritgerð út úr erminni fyrir lok laugardagsins og nógu erfiðlega gengur mér að lesa heimildirnar! Það verður nefnilega próf eftir viku og annað á mánudeginum eftir það svo að ég þarf að vera búin með ritgerðina ti að geta lært eitthvað undir þau - ansi mikill frumlestur þar á ferð! Ég veit ekki afhverju ég geri þetta - e.t.v einhver sjálfspíningarhvöt eða þörf til að mistakast, hver veit? Mér tókst á einhvern furðulegan hátt að týna gleraugunum mínum - það er ansi hvimleitt þar sem ég sé ekki nógu vel á sjónvarpið án þeirra og lít út eins og greppitrýni í framan þegar ég þarf að sjá textann (fjölskyldan mín áttar sig e.t.v meira á því hvernig ég lít út ef ég segi þeim að ég sé að verða líkari pabba með hverri gleraugnalausri stundinni sem líður). Ég tók gleraugun af mér í skólanum í morgun þar sem þau voru öll útrignd og ógeðsleg, er næstum viss um að ég hafi sett þau aftur á mig - sérstaklega þar sem á næsta borði við mig hafði einhver gleymt bæði vettlingunum sínum og gleraugum ofan á þeim (nei, það voru ekki mín). Ég er líka næstum því viss um að hafa tekið gleraugun af mér þegar ég var að græja mig fyrir æfinguna en ég finn þau alls ekki! Er nánast viss um að einhver álfur hafi stolið þeim og komi ekki til með að skila þeim fyrr en ég er hætt að leita! Ég þarf sem sagt að hætta því þar sem það er mikilvægur tími hjá mér kl.11 í fyrramálið og þá er MJÖG nauðsynlegt að ég sjái á töfluna. Annars er ég orðin svo kærulaus að gömlu góðu gleraugun mín, nú eða bara Sveinbjörns verða látin duga ef hitt bregst - þó svo að ég líti út eins og andskotinn í þeim! Mér er nefnilega eiginlega alveg sama - takið eftir EIGINLEGA! Ég er hvort sem er öll útsteypt í einhverju béskotans ofnæmi í andlitinu og á bringunni svo að ég get varla litið mikið verr út! Hafdís skrifaði klukkan 11:42 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||