24.1.06
Vikan byrjar soldið skringilega!
Við Sveinbjörn settumst upp í glænýjan lúxus bíl í gær og leið eins og við værum svakalega fancy! Ekkert smá gaman að koma í glænýja bíla sem eru með góðu new-car lyktinni. (Ég er reyndar búin að heyra að maður geti keypt svoleiðis lykt í bílinn en ég myndi ekki vilja kaupa svoleiðis í dolluna okkar - það væri bara fake)
Í dag settumst við síðan í annan glænýjan bíl og fórum út að borða í tilefni dagsins - þ.e heimkomu nýja bílsins. Tengdamamma og tengdapabbi (sem eru þó ekki hjón) voru bæði að kaupa sér nýja bíla í seinustu viku og fengu þá afhenta í gær og í dag! Við fengum að sjálfsögðu að prufukeyra og VÁ þvílíkur lúxus.
Tengdapabbi fékk Hyundai Santa Fe í gær - flottustu týpuna með sóllúgu, loftkælingu (hægt að stjórna hitanum með gráðum), cruise control, leðri í sætum, skyggðum rúðum og öllum græjum. Æðislegur bíll!
Tengdamamma fékk svo Hyundai Tucson afhentan í dag (þessi þar sem maðurinn fer upp á fjall til að sækja sér klaka í bílinn). Hann er líka æðislegur. Ofsalega flott inn í honum og það er rosalega gott að sitja í honum!
Við fórum á Ruby Tuesday í tilefni dagsins og borðuðum á okkur gat. Þetta var í annað skiptið sem ég fór á þann stað. Finnst þó staðurinn í Skipholti betri en þessi upp á Höfða - alla vega þjónustulega séð en maturinn var ofsalega góður!

Mér líður því soldið eins og stjörnu í dag - dubba mig upp til að setjast í bíl beint úr kassanum og fer svo út að borða og fæ eftirrétt og allt - er hægt að hafa það betra?

Komst að því í gær að mér er ekki ætlað að hafa það gott á 25 ára afmælisdaginn (1.mars) því að ég skila ritgerð þann dag, fer svo í próf 2 dögum seinna og svo aftur mánudaginn eftir (6.) Ég er ekkert sérstaklega hrifin af þessu þar sem mig langaði afskaplega mikið að halda upp á að vera orðin tuttugu-og fimm ára! Ætli ég reyni ekki bara að fresta afmælinu eitthvað nú eða halda upp á seinustu dagana sem tuttugu-og fjögra ára!

Annars er lærdómsgírinn minn eitthvað vanfundinn. Er ennþá bara að lulla áfram í letingagírnum. Afraksturinn dagsins var því American Idol síðan í gær og almenn leti! GERI AÐRIR BETUR!

En ég þarf víst að fara að sofa - mín bíður tími kl.9.40 í fyrramálið!

Þangað til næst - verið þið hress, ekkert stress, bless!

Hafdís skrifaði klukkan 10:56 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli