3.1.06
Velkomin á nýja og vonandi betri síðu! Hér á eftir er annáll seinasta árs - helst til langur en þið hafið vonandi gaman af!

Annáll 2005

Janúar:
Ég byrjaði árið aldeilis hressilega! Sveinbjörn veiktist á Þorláksmessu og var veikur fram í janúar en ég veiktist hins vegar ekki fyrr en á milli jóla og nýárs og því vorum við bæði uppfull af slími, hóstandi og hnerrandi til skiptis og með verulega mikla beinverki og eyrnaverki um áramótin. Þeim eyddum við því bara heima hjá tengdó þar sem við spiluðum og hnerruðum til skiptis! Mér tókst að fegra heimilið örlítið á meðan ég var lasin en það olli e.t.v því að ég var veik fram í miðjan mánuðinn og hef sjaldan verið veik jafn lengi. Afar leiðinleg byrjun á annars góðu ári! Nágrannarnir í neðra voru dugleg í næturbröltinu og héldu iðulega fyrir okkur vöku ? nokkuð sem átti ekki eftir að breytast fyrr en á haustönn 2005 eftir að lokaviðvörun barst þeim! Í þessum mánuði ákváðum við skötuhjúin að fara í æfingaferð til Kanarí um páskana með ÍR, UMSS og HSK!

Febrúar:
Ég fór í fyrsta skipti í líkamsræktarstöð í febrúar í fyrra og hef ekki farið síðan þá! Ellen vinkona dró mig í tíma dauðans sem olli því að ég var nánast lömuð næstu 3 daga á eftir með nístingsverki í öllum vöðvum og gat varla glósað í tímum! Átakið í bikíní fyrir Kanarí átti hug minn allan og ég fór út að skokka á morgnana eins og ég fengi borgað fyrir það! Ég komst að því að röddin á mér er viðbjóður þegar ég hlustaði á upptökur af sjálfri mér syngja! Ætlaði að einbeita mér að því að verða djúpraddaðari en það verkefni hefur ekki skilað tilætluðum árangri ? spurning um að taka það upp að nýju?

Mars:
Ég varð 24 ára í mánuðinum og þurfti smá tíma til að melta það! Upphaflega hafði ég ætlað að vera búin að eignast börn og buru á þessum aldri en það hefur ekki aldeilis ræst úr því! Hugsa að ég fresti þeim plönum um nokkur ár í viðbót!
Þurfti að læra eins og vitleysingur til að komast til Kanarí ? þar sem við fórum fyrir páska þurfti ég að fá nokkrar undanþágur og skila verkefnum fram í tímann ? nokkuð sem ég hef aldrei gert áður á ævinni! Við fórum svo til Kanarí 15.mars og komum til baka aðfaranótt 30. Þessi ferð var ógleymanleg í alla staði. Frábær hópur, gott veður, skemmtileg staðsetning og góðar æfingar! Held að þessi ferð verði seint toppuð!

Apríl:
6.apríl er merkur dagur í mínu lífi. Þennan dag var ég ráðin í tvær vinnur á sama degi! Þar af leiðandi var hann sérlega gleðilegur og stressliðkandi. Tvær af greinum mínum á heimsíðunni minni komust í blaðið ? ég var ekkert sérlega hrifin af því en tók ekkert sérstaklega eftir auknum heimsóknarfjölda og gladdist soldið yfir því! Er nefnilega ekkert sérlega kát með að fólk sem þekkir mig ekki sé að skoða vitleysuna sem vellur upp úr mér og frægð er ekki eitthvað sem ég þrái þó ég hafi oft bullað um annað!

Maí:
Í maí kom 15000 gesturinn á síðuna mína, í desember voru 40000 gestir búnir að koma á síðuna og þykir mér það bara nokkuð gott afrek! Próf, ritgerðir og þýðingar áttu annars hug minn allan þennan mánuðinn! Þau gengu ágætlega að einu undanskildu. Þá áttaði ég mig á því fyrir alvöru að ég er með meinloku fyrir heimspeki! Ég byrjaði svo að vinna hjá Icelandic Group og leist bara vel á mig og hafði sérstaklega orð á því að mötuneytið væri mér að skapi ? það sannaðist bara þegar á leið sumarið! Eitt besta mötuneyti ever! Eins og svo oft áður var mér tíðrætt um kalóríur, fitu og hollystu og að ég væri byrjuð í átaki! Eins og svo oft áður var ég mikil í orði en lítil á borði! Spurning um að reyna að minnka þetta fitutal!

Júní:
Ég keypti mér linsur ? hef aldrei átt linsur og fannst þetta voða mikið pæjuskref! Ég hef þó ekki notað þær eins mikið og ég ætlaði og veit því ekki hvort af áframhaldandi fjárfestingu verður ? sjáum til! Grein frá mér birtist í Blaðinu þrátt fyrir heiðarlega tilraun til að dulkóða! Ég hét því að sama skapi að starfa aldrei aftur sem ræsir og hef staðið við það loforð mitt hingað til! Ég æfði mjög mikið á þessum tíma og var mjög dugleg en eins og svo oft áður missti ég það fljótlega niður! Ég vann með sjónvarpinu á Bikarkeppni FRÍ og í kjölfarið sá ég fram á að ég myndi hafa gaman af því að vinna í sjónvarpi. Kunni alla vega ágætlega við mig með höfuðtól J Í júní spilaði ég Catan í fyrsta skipti og hef verið óstöðvandi síðan ? verst að spilafélagar fæðast ekki á trjánum...

Júlí:
Við skötuhjúin skelltum okkur á Austfirðina. Slógum tvær flugur í einu höggi þegar við hittum bekkjarfélaga mína úr grunnskóla á Vopnafjarðardögum og sömuleiðis alla mína gömlu félaga fyrir austan. Þetta var að sjálfsögðu mjög skemmtilegt og ég þarf greinilega að drífa mig oftar á heimaslóðir. Sömu helgi fórum við á Meistaramótið á Egilsstöðum. Ég keypti í þrístökki en þar sem mér hafði tekist að rota mig kvöldið áður var árangurinn í því ekki upp á marga fiska! Við lentum síðan í svaðalegustu flugferð í okkar sögu þegar við þurftum að gera 3 tilraunir til að lenda í Reykjavík og lentum síðan að lokum í Vestmannaeyjum til að taka bensín og brunuðum síðan aftur suður og lentum 4 tímum á eftir áætlun!

Ágúst:
Verslunarmannahelgin var róleg þetta árið eins og árið áður. Við frjálsíþróttakrakkarnir hittumst eins og í fyrra og höfðum það gott. Ég fór í 2 sumarpróf og þau áttu að mestu hug minn allan þann mánuðinn! Við frjálsíþróttastelpurnar gæsuðum svo Bergrós og komum henni þar með á óvart í fyrsta skipti á ævinni! Ótrúlega skemmtilegt kvöld! Nýtt sófaborð og nýr fataskápur litu dagsins ljós í höllinni og fegruðu hana um helming! Ég lýsti auk þess yfir stríði við nágrannana sem varð til þess að það hefur varla heyrst í þeim síðan þá...ég er augljóslega hörð í horn að taka! Ég varð veik í prófunum enn á ný og það setti strik í reikninginn ? hefði betur sleppt öðru prófinu þar sem ég hafði ekkert náð að einbeita mér í aðdragandanum né í prófinu sjálfu! Það varð brjálað að gera hjá mér í vinnunni í lok ágúst þar sem ég var að leysa yfirmanninn minn af en ég hafði það af án þess að fá magasár! Ég fékk að vita að ein besta vinkona mín væri ólétt og ætti að eiga 1.mars ? það breyttist reyndar í 3.mars en hún er að vinna með mér í því að færa þetta fram um 2 daga!

September:
Það var brjálað að gera hjá mér í vinnunni í september út af sjávarútvegssýningunni. Það var golfmót í vinnunni á sama tíma sem ég hjálpaði til við að skipuleggja. Þann daginn keyrði ég um á golfbíl með Þórólfi Árnasyni og gaf mishressum golfurum hressingu! Skemmtilegur tími en afar erfiður. Við skötuhjúin skelltum okkur til Kaupmannahafnar í heimsókn til Rakel og Himma! Þetta var ótrúlega skemmtilegur tími og við höfðum það afar gott saman! Verður án efa endurtekið í bráð þar sem þau eru höfðingjar heim að sækja! Við stefnum reyndar á ansi mörg ferðalög á þessu ári þar sem alltof margir góðir vinir okkar eru fluttir úr landi!

Október:
Ég byrjaði að æfa af krafti eftir langt hlé og það tók sinn toll þar sem æfingar í október eru ekki fyrir alla! Þetta var mjög erfiður tími þar sem all flestir vöðvarnir í líkamanum voru stífir, skakkir og skældir meira og minna allan mánuðinn! Þetta var samt ljúfsárt þar sem það er ótrúlega góð tilfinning að finna hvernig maður kemst í form á ný! Við skelltum okkur í eina af mörgum spilaferðum upp á Laugarvatn til að spila við kennarahjúin þar, Bjössa og Gunnhildi. Þau hafa með öðrum bjargað okkur algjörlega síðan fyrrum spilafélagar okkar númer eitt fluttu til Bandaríkjanna. Veit ekki hvað við gerum ef þau flytja líka til Bandaríkjanna næsta haust ? ætli við verðum þá ekki bara að vona að Bergur eignist kærustu fyrir þann tíma? ;)
Sveinbjörn átti loksins afmæli og varð jafngamall mér ? gott fólk heiðraði okkur á þeim tíma og við fórum út að skemmta okkur í fyrsta skipti í LANGAN tíma!

Nóvember:
Mánuðurinn einkenndist af æfingum, svefni, skóla og barnaskoðunarferðum. Ég var móðir í einn dag þegar Bjössi og Gunnhildur lánuðu okkur Guðmund Gígjar. Mér til mikillar mæðu var hann eins og ljós í stað þess að haga sér eins og almennileg getnaðarvörn ? hann stendur sig ekki í stykkinu strákurinn sá!
Annars var ég afskaplega þreytt í þessum mánuði og enn og aftur voru æfingarnar að taka stóran toll! Ég var þó afar hissa á því hversu vel ég var að þola allt þetta álag og hefði í raun átt að átta mig á því þá að þetta var of mikið álag ? ég var ekki nógu skynsöm og í kjölfarið fékk ég mikla verki í ristarnar sem ég hef verið að glíma við síðan þá!

Desember:
Próf, Próf, Próf, Próf og Próf ? fátt annað komst að fyrir utan einstaka æfingar og smá hittinga hér og þar! Eftir að við kláruðum prófin höfum við verið dugleg að hitta vini og kunningja ? frjálsíþróttakrakkarnir hafa verið ansi duglegir að hittast mér til mikillar ánægju. Ég hafði það ótrúlega gott um jólin og fékk fullt af fallegum jólagjöfum.

Jólaglaðningar ársins:
Sveinbjörn gaf mér ecco-skó til að nota hversdags og ofsalega fallegt demantshálsmen sem er bæði úr gulli og hvítagulli! Hann er smekkmaður þessi elska! Ég gaf honum aftur á móti iPod nano sem hann var að sama skapi lukkulegur með og hefur glaður hlaupið með undanfarið! Foreldrar mínir gáfu mér svo ofsalega fallega kápu sem smellpassar á mig og mér finnst æði! Systir mín gaf mér flotta peysu og listaverk sem minnir mig á hvað hún er einstök! Ellen vinkona gaf mér pæjupeysu sem kemur sér án efa vel í pæjuupphafningu minni og mynd af okkur saman sem hefur nú þegar fengið sérstakan stað á skrifborðinu mínu. Ég fékk líka flotta inniskó frá Árdísi vinkonu minni sem ég hef notað óspart síðan. Ég fékk líka pening sem ég ætla að nota til að kaupa mér eitthvað fallegt á útsölunum í vikunni! Sameiginlega fengum við skötuhjúin matarstell frá tengdamömmu sem kemur sér vel þar sem við áttum bara nokkra diska héðan og þaðan! Hún gaf okkur líka startkapla ? ég fékk þann svarta og Sveinbjörn þann rauða. Hugmyndin á bak við þá er að þeir virka bara saman en ekki í sitthvoru lagi!

Áramótin:Áramótinum eyddum við heima hjá mér og kvöldinu með frjálsíþróttakrökkunum sem var þó ekki ákveðið nema með nokkra tíma fyrirvara! Við kíktum þó líka aðeins á vini hans Sveinbjörns, Bigga og Magney, þar sem þau héldu partý í villunni sinni í Grafarholti!

Þakka öllum sem komu við sögu í okkar lífi á þessu ári kærlega fyrir og vona að samverustundunum fjölgi á því næsta!

Hafdís skrifaði klukkan 9:10 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli