6.1.06
Segulómuð

Ég fór loksins í segulómun í morgun. Átti fyrst að fara í lok desember en þurfti að breyta því og fór því fyrst í dag! Herlegheitin kostuðu um 18000 krónur í viðbót við slatta af þreki og tárum en þetta er ekki þægilegasta myndataka sem ég hef farið í! Í fyrsta lagi er ég ekki sterk í því að liggja kyrr í 2 tíma og því var það heljarinnar þrekraun út af fyrir sig! Ég gladdist þó yfir því að hafa tekið bókina mína með og svo hlustaði ég soldið á útvarpið líka! Ómunin var einna helst óþægileg þar sem tækið er ekki beint gert til að skanna ristar þannig að ég þurfti soldið að vanda mig við að vera kyrr í hólknum sem var til að hvíla fótinn á - hann var nefnilega bæði of stór og of lítill og því þurfti ég að passa að renna ekki út fyrir hann og ekki til inn í honum - stórskemmtilegt! Þetta hófst þó að lokum eftir nokkra taugakippi og skemmtilegheit og niðurstöðurnar berast snemma í næstu viku!

Ég ætla svo að skella mér niður á tryggingastofnun til að fá afsláttarkort í kjölfarið á þessari blóðtöku úr pyngjunni og ætla svo að reyna að nýta það til hins ítrasta! Gott að ég sleppti því að fara í lok des - það hefði ekki verið gott að fá afsláttarkort 29.desember!

Annars er ég soldið aum eftir þessa kyrrsetu og ætla því að reyna að gera eitthvað mér til hreyfings!

Bið að heilsa í bili!

Hafdís skrifaði klukkan 2:01 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli