|
|||||||||||||||||||
|
9.1.06
Maraþon hreingerning.Við móðir mín tókum okkur til í gærdag og þrifum eldhúsið hennar ömmu hátt og lágt. Amma er að verða níræð á þessu ári og getur því ekki staðið í stórræðum sem þessum og því tókum við mæðgur þetta að okkur með glöðu geði. Eftir að hafa þrifið stanslaust í um 6 tíma og hent öllu sem var orðið úr sér gengið og ógeðslegt vorum við báðar uppgefnar og þreyttar bæði á sál og líkama! Ég var búin að hoppa upp á alla skápa og þrífa ofan og neðan, síðan vorum við búnar að draga fram eldavélina og þvo allt leirtau og hnífapör upp og það er eins og eftir meðalstóra veislu... Ég fann hins vegar ekki mikið fyrir neinum eymslum fyrr en ég vaknaði í morgun, þá skildi ég ekkert í því hvað væri að bakinu á mér - hélt fyrst að ég hefði sofið eitthvað skringilega en svo áttaði ég mig á því að það að bogra yfir eldhúsinnréttingu í 6 tíma og setjast bara niður í svona korter af þeim tíma fer kannski ekkert sérlega vel með bakið! Ég er hins vegar bara aðeins aum í því og finn að það var álag en annars er ég bara góð. Ákvað nú samt að fresta megahreingerningunni á minni íbúð aðeins fram í vikuna til að fara nú ekki alveg með mig. Ég á það líka til að ofmetnast aðeins og sé núna að það er langtum sniðugra að gera þetta á 2 dögum en reikna þó með að ákveða þegar ég er á annað borð byrjuð að klára þetta bara! Það verður án efa fjör þar sem það heyrist alltaf frekar vel í mér þegar ég er að taka til. Alveg sama hvað ég reyni ég verð held ég alltaf hávær! Ég kláraði jólabókina mína í gær - þriðja táknið sem er spennusaga eftir Yrsu Sigurðardóttur. Hún var ansi spennandi og soldið öðruvísi. Ég fræddist heilmikið við lestur hennar enda fjallaði bókin um ungan sagnfræðinema sem var myrtur og því lærði ég ýmislegt í sagnfræði við lestur bókarinnar. Að mínu mati er það mikill plús að læra eitthvað um leið og maður les. Spurning um að ég fari að lesa námsbækurnar mínar aðeins betur... Annars er voða lítið að frétta - ég byrja ekki í skólanum fyrr en eftir viku og veit ekki hvað ég á af mér að gera þangað til þá! Reyndar er hreingerning á dagskrá eins og áður sagði en annars er ekkert planað! Mig langar samt ekki beint til að byrja aftur í skólanum strax, fékk alveg nóg af lærdómi í desembermánuði! Ég á líka enn eftir að fá eina einkunn, hinar tvær komu jákvæðar í hús! Ég er að hugsa um að skora á Sveinbjörn í tölvuleik - þangað til næst - verið góð hvort við annað!! Hafdís skrifaði klukkan 4:30 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||