|
|||||||||||||||||||
|
20.1.06
Líkaminn minn er lurkum laminn þessa dagana. Ég tók nefnilega upp á því að hreyfa hann svolítið og hann hefur ekki verið ánægður með það!Ég reyndi nú samt að gera í því að fara rólega af stað en ég þekki kannski ekki alltaf mín takmörk! Annars hefur skólinn líka farið rólega af stað. Frekar þægileg vika hjá mér! Smá skóli á þriðjudag og miðvikudag, frí í gær og svo einn tími í dag. Get ekki sagt að ég geti kvartað yfir þessu! Í kvöld ætla ég að smella mér á Brokeback Mountain með móður minni og Ellen. Er búin að heyra að þessi mynd sé æði og því hlakka ég mikið til. Annars er ég strax farin að undirbúa mig undir að gráta mikið. Ég er nefnilega grenjuskjóða og hef einu sinni fengið svo svakalegan ekka í bíó að allur salurinn hristist og allir horfðu á mig - já, gaman að segja frá því! En það er allt í lagi ég er sæt þegar ég græt! Það er alla vega nokkuð ljóst að ég er ekki dauð að innan þar sem ég get nánast grátið yfir hvaða sorglega atriði sem er! Ég er svöng! Ætla því að fara að finna mér eitthvað að borða! Hafdís skrifaði klukkan 2:31 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||