10.1.06
Kynþokki

Ég kíki ekki oft inn á Vísi.is en einhverra hluta vegna kíkti ég þangað í gærkvöldi og rak þá augun í kosningu um kynþokkafyllstu konu Íslands undir þrítugu!Þar eru 53 stúlkur tilnefndar af álitsgjöfum vísis og það er hægt að kjósa eina þeirra sem þá kynþokkafyllstu. Ég er örugglega ekki besti dómarinn um kynþokka en af þessu 53 fannst mér aðeins örfáar hafa vott af því sem ég kalla kynþokka! Mér fannst restin samanstanda af svokölluðum sætum stelpum en hjá mér er ekkert samasem merki á milli kynþokka og sætleika! Mér finnst til að mynda eftirtaldar stúlkur vera mjög sætar en að mínu mati eru þær ekki kynþokkafullar: Nylon-gellurnar, allar fegurðardrottningarnar sem eru tilnefndar - þó finnst mér Sigrún Bender komast einna næst því að vera með kynþokka, Birgitta Haukdal, Hildur Vala og svona gæti ég nánast haldið áfram með allan listann! Mjög mikið úrval af fríðum stúlkum en ekki mikill kynþokki!Ég er reyndar mjög skrýtin hvað þetta varðar. Mér finnst Beoncey Knowles vera afskaplega kynþokkafull, sömuleiðis Jennifer Lopez og Selma Hayek, mér finnst líka Scarlett Johannson vera að koma sterk inn um þessar mundir þrátt fyrir að Latín-bombur séu meira MINN stíll!Á ofangreindum lista voru 3 konur sem mér finnst geta flokkast undir að vera kynþokkafullar. Elva Björk sem leikur til að mynda í Rosa góður draumur auglýsingunni, Helga Lind Björgvinsdóttir finnst mér afskaplega falleg og jafnframt kynþokkafull og svo er ein þarna sem ég veit ekkert hver er en myndin af henni lofaði góðu - Katrín Ella Jónsdóttir! Það er þó engin sem mér finnst afar kynþokkafull - þessar þrjár stóðu þó öðrum framar að mínu mati!Ég vil að konur séu með línur - mér finnst þar af leiðandi fyrirsætur yfirleitt ekki mjög kynþokkafullar þar sem þær hafa afskaplega flatar línur. Ég vil hafa smá rass, læri og brjóst! Ávalar línur heilla mig sem sagt! Dulúð kemur líka sterk inn hjá mér og því held ég að Helga Lind heilli mig soldið - hún hefur einhverja dulúð yfir sér!Reyndar hef ég alltaf verið á því að konur verði kynþokkafyllri með aldrinum og því finnst mér soldið skrýtið að velja kynþokkafyllstu konu undir þrítugu! Mér finnst tvítugar stúlkukindur ekki hafa þessa dulúð og kynþokka - er á því að þetta komi einmitt upp úr þrítugu!Misjafn er smekkur manna og minn er allur í latín-bombunum sem kunna að hrista sig og hreyfa!Að mínu mati liggur kynþokki í hreyfingum eins og ég greindi frá hér að ofan, dulúð og felst að miklu leyti í augum og látbragði öllu saman!Ef ykkur langar að kíkja á listann góða er hann hér að finna

Hafdís skrifaði klukkan 8:41 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli