|
|||||||||||||||||||
|
13.1.06
Heil og sæl!Ég tók mig til í gær og hóf brjálaða nýárs-hreingerningu! Ég hafði ekki tíma til að taka jólahreingerningu og ákvað því að taka íbúðina frekar í gegn á nýju ári til að losna við allt stress! Eftir þennan fyrsta dag í áfanganum að hreinni íbúð get ég sagt ykkur að það að affrysta ískáp og frystihólf er eitt það leiðinlegasta sem hægt er að gera! Ég er auk þess ekki þolinmóð ung kona og því átti ég soldið bágt með mig þegar ég sat á hækjum mér með hárblásarann að vopni og bræddi nokkra cm þykkan klakann af frystihillunum mínum! Þetta hófst þó allt fyrir rest og þegar ég var búin að vaska upp allar hillur og annað tengt ískápnum glansar hann sem aldrei fyrr! Ég tók mig líka til og þvoði allar gardínur! Það var í sjálfu sér lítið mál en að setja gardínuhjólin (þetta sem heldur gardínunni á brautinni svo hægt sé að draga hana frá og fyrir) aftur á er ekki eins mikið stuð! Sérstaklega ekki á ofur svefnherbergisgardínunum sem eru hver um sig með 40 hjól og þær eru þrjár! Ég er alla vega aum í puttunum í dag! Þetta var nú skemmtileg lesning! Svona til að gefa ykkur eitthvað til að brosa að ákvað ég að vaska hillurnar úr ísskápnum upp í sturtunni! Það gekk ágætlega til að byrja með, það skvettist voða lítið af vatni á mig og mér gekk ágætlega að þvo hillurnar! Að sjálfsögðu tókst mér, áður en yfir lauk, að henda uppþvottaleginum í gólfið og skvetta uppþvottalegi yfir klósettið og stóran hluta af gólfinu! Að sama skapi tókst mér að bleyta sjálfa mig þegar ég var að affrysta með því að taka ekki eftir því að stríður straumur rann undir ískápinn og náði að lokum fótunum á mér! Hreint út sagt yndislegt að fá svona frostkalt vatn á fæturnar á sér! Tiltektin heldur sem sagt áfram í dag! Ég reikna með að eiga eftir að rota mig ca.2 - missa eitthvað ofan á lappirnar á mér (tókst það reyndar líka í gær) og svo finnst mér líklegt að ég fái eins og einn stóran marblett! Í kvöld er ég svo að fara út að borða með sálfræðiskvísunum! Við ætlum að bregða okkur á Vegamót, ég hef aldrei borðað þar en heyrt gott af staðnum og hlakka því soldið til :) Bið að heilsa í bili, Hafdís skrifaði klukkan 11:31 f.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||