23.1.06
Ég hef ekki vaknað jafn snemma og ég gerði í morgun í heilan mánuð og gott betur en það. Ég REIF mig á fætur kl.9 þar sem ég átti að mæta í skólann kl.9.40 og fannst ég sko vera alveg svakalega dugleg! Ég er reyndar orðin ótrúlega þreytt í dag og það eru bara milljón tímar eftir af sólarhringnum. Ég hlýt alla vega að geta farið í bólið í kvöld á sómasamlegum tíma. Seinustu daga/nætur hef ég ekki getað sofnað fyrr en í fyrsta lagi kl.2 eftir miðnætti og það var einmitt upp á teningnum í nótt og því svaf ég ,,bara" í 7 tíma í nótt! Ég hef vanið mig á það að sofa í a.m.k 9 tíma í alltof langan tíma svo að þetta er EKKERT fyrir mig! Þetta hlýtur að venjast vel!

Annars var helgin frekar róleg og þægileg. Ég fór í bíó á föstudaginn. Brokeback Mountain. Hún er mjög góð að mínu mati - ofsalega spes en samt svakalega góð og strákarnir tveir leika alveg svakalega vel!

Á laugardaginn var Þorrablót heima hjá foreldrum mínum þar sem við skötuhjúin og Ellen vorum heiðursgestir. Skemmtilegt að fá stundum svona þjóðlegan mat. Ég dó úr hlátri við að horfa á Sveinbjörn greyið reyna að borða hákarl - hann gretti sig meira en góðu hófu gegnir ;)

Við horfum síðan á forkeppnina í Eurovision. Lögin komu mér stórlega á óvart þar sem mér fannst stór meirihluti þeirra vera afskaplega lélegur. Fannst reyndar eitt lagið alveg hreint ágætt!

Í gær horfði ég á Manchester United - Liverpool heima hjá tengdapabba frænda míns. Þar var ég ein með milljón Liverpool aðdáendum og var ekki vinsæl í lok leiks. Ég var líka fljót að forða mér út að leika við frænda minn og hundinn hans (litla frænda minn sem stóð alveg á sama um úrslitin). Góður dagur hjá mínum mönnum og mitt litla hjarta var glatt í gær!

Bið að heilsa í bili,

Hafdís skrifaði klukkan 10:27 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli