16.1.06
Bókakaup eru alltaf sérstaklega skemmtileg! Ég keypti námsbækurnar mínar í dag og horfði með söknuði á eftir alltof mörgum peningum í kassa bóksölunnar! Ég hefði alveg verið til í að eyða þessum peningum í eitthvað ALLT annað heldur en þetta en svona er lífið! Bækurnar eru áreiðanlega afskaplega skemmtilegar og yndislegar svo að ég ætti ekki að vera að kvarta! Kostnaðurinn var líka lægri í ár heldur en oft áður þar sem ég fékk bækur lánaðar og get notað eina aftur! 3 bækur í 2 fögum voru samt 15000 króna virði - veit ekki hvað ég hefði gert ef ég hefði þurft að kaupa hinar líka - shæsinn!

Við Sveinbjörn vorum að íhuga að fara í bíó í kvöld þar sem það er svo margt að sjá. Ég er soldið spennt fyrir Brokeback Mountain - hef heyrt afskaplega fagrar sögur af þeirri mynd og langar því mikið að sjá hana! Ég á líka án efa eftir að gráta mikið en það er svo sem ekkert nýtt!
Við hættum hins vegar snarlega við þegar við litum út um gluggann þar sem veðrið er ekki fallegt á þessu land í dag! Ég þoli heldur ekki að vera blaut í tærnar af því einu að labba út í bíl og inn í hús! Mér tekst reyndar alltaf á einhvern óútskýranlegan hátt að blotna upp að hnjáum og skvetta slatta á kápuna mína af því að skafa bílinn - jafnvel þó að það sé einungis smá hula á honum! Þetta er einn af mínum mörgum hæfileikum sem fáir geta leikið eftir!

Annars er ég með ansi spennandi fréttir - þeir sem ekki hafa heyrt þær geta haft samband - þær verða ekki birtar hér í bráð! ;)

Hafdís skrifaði klukkan 8:50 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli