14.2.05
Oj, ég var búin að skrifa heila ritgerð um restina af tenglunum en hún virðist hafa gufað upp - get ekki lýst vonbrigðum mínum.

Annars skil ég ekki þessa brjáluðu umræðu um að Skjár1 megi ekki senda út leiki þar sem enskir þulir sjá um að lýsa. Mér finnst það bara hressandi - góð tilbreyting. Sjálf lækka ég oft niður í þeim íslensku þar sem þeir eru misgóðir, mishliðhollir liðum og oft á tíðum bara leiðinlegir. Ég lækka þó oftar þegar mínir menn eru að tapa þar sem ég er þá nálægt því að henda sjónvarpinu í gólfið og þoli bara ekki meiri gagnrýni.
Skil samt vel eldra fólk sem skilur ensku ekki vel en fótbolti er nú ekki það flókin grein að það þurfi að segja þér nákvæmlega hver er með boltann, hvað gerist og afhverju.

Áfram ensku þulir!

Hafdís skrifaði klukkan 1:59 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli