16.2.05
Góðan daginn,

Ég tók strætó í annað skipti á þessu ári í gær. Finnst bara hressandi að vera í 40 milljóna króna VOLVO. Ég var bara að borða eplið mitt, lesa í réttarsálfræði og skoða fólkið. Reyndar er ekkert mest stuð að bíða eftir þeim gula en ég er nú þegar komin með tímatöfluna á hreint 0 Var að vinna frá kl.5 í gær - var leyst út með gjöfum vegna glæsilegs árangurs. Fínt að koma heim með súkkulaði, hlaup og bíómiða fyrir 4. Splæsi á Sveinbjörn í bíó á næstunni!

Var annars bara að vinna eins og mófó í gær. Hringdi svona u.þ.b 80 símtöl. Gaman að biðjast afsökunar 80 sinnum á einu kvöldi. Geri aðrir betur!

Hafdís skrifaði klukkan 1:58 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli