14.2.05
-Ég er farin að hreyfa hendurnar eðlilega og finn bara brot af upprunalega sársaukanum. Þetta er jákvætt mjög og því hyggst ég mæta kát í þrektímann aftur á morgun og ná mér í fleiri harðsperrur.

-Ég fór í sumarbústað um helgina og skemmti mér þrælvel. Mikið gaman og mikið grín. Þema helgarinnar var Aftur til fortíðar og því hlustuðum við á snilldardiska sem voru vinsælir þegar við vorum 14-15 ára og sungum með.

-Það er samt ekki gott að sofa í koju og því svaf ég helst til lengi í nótt. Reyndar sýndi ég líka hörku í sumarbústaðnum og vaknaði um 10 leytið, ein, og fór að læra. Ekki gott fyrir þau að ég sé fyrst á fætur þar sem hljóðlátt er ekki eitthvað sem mér er tamt. Það fór reyndar svo að gestgjafarnir gátu vel sofið fyrir mér - sem betur fer! Kannski er ég hljóðlátari en ég hélt!

-Röddin í mér er viðbjóður - var að hlusta á videoupptökur úr bústaðnum og jesús. Er hægt að vera skrækari? Með kanarímissioninu mínu ætla ég að einbeita mér að því að verða djúprödduð! Það er alltof erfitt að hlusta á sjálfan sig tala og hvað þá syngja en það eru einmitt til svona þrjár upptökur af mér í góðum gír. Er hér með hætt að gagnrýna sönghæfileika annarra þar sem mínir eru af MJÖG skornum skammti. Hugsa samt að ég nái að stæla Stebba Hilmars eins og hann var í denn - Skrækur Hilmars.

-Lýsingin á restinni af tenglunum mínum ætti að detta inn í þessari viku! Gullfiskaminnið mitt náði að gleyma þessu þema mínu...

Þá er ekki fleira í fréttum að sinni, verið þið sæl!

Hafdís skrifaði klukkan 1:59 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli