17.2.05
Ég er búin að leggja mig fram í að verða betri kona! Í því felst:
- að ég er búin að elda oftar heima hjá mér
- baka sjaldnar til að koma í veg fyrir fitu.
- er búin að mæta í ALLA tíma á þessari önn og fylgist betur með
- læri meira heima
- æfi meira og reglulegra en ég gerði
- duglegri að spara peninga - kominn tími til
- ætla að vera duglegri að hitta vini og kunningja því að þeir eru jú það verðmætasta með fjölskyldunni.
- tala öðruvísi þar sem röddin í mér er í ruglinu!
- reyna að vera sæt oftar, hafa mig betur til.
- vera duglegri að taka til svo að það sé fínt í kringum mig.
- tala minna í símann þar sem það er dýrt og eyðir tíma!

Aðrar hugmyndir að betrum bætingu minni eru vel þegnar.

Hafdís skrifaði klukkan 1:54 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli