26.9.04
Samantekt:

Föstudagur:
Gerði verkefni með Agnesi og fór svo í badminton með Sveinbirni, Sigurjóni og Miss Smassi. Erna a.k.a Miss Smass efndi til hópferðar í hnit eins og það kallast á íslensku og við vorum afraksturinn. Hún gleymdi þó að nefna að hún hefði æft þessa íþrótt í 23 ár og að hún væri þar af leiðandi helvíti góð í henni. Við, þessi saklausu, fórum nefnilega með því hugarfari að fíflast soldið og slá nokkrar flugur eins og fjaðraboltinn kallast. Það varð ekki mikið úr því þar sem það eina sem við fengum að gera var að gefa upp nokkrum sinnum þar sem Erna smassaði alltaf strax í okkur til baka ef við gáfum of háa bolta í uppgjöf. Ef að boltinn hefði sem sagt verið aðeins stærri værum við þrjú hin fræknu með marbletti út um allt og Sveinbjörn væri geldur! Erna smassaði sem sagt fram og tilbaka og við áttum fótum okkur fjör að launa! Sveinbjörn svitnaði sem sagt ekki af þessum 50 mínútna reyna-að-forðast-kúluna leik okkar. Erna hefði getað unnið okkur hin 3 þar sem ekkert okkar er sérstaklega sterkt í þessari grein enda mörg ár síðan við snertum spaða seinast og þá vorum við heldur ekkert sterk!
Við kíktum svo í smá mini-innflutningspartý til Ingva og Gingu um kvöldið þar sem við hámuðum í okkur veigarnar og höfðum það gott.

Laugardagur:
Lærði í 8 tíma sem er persónulegt met hjá mér þegar það er ekki próf daginn eftir. Er sérlega stolt af þessu og vona að það verði framhald á þessum dugnaði mínum! Áfram Hafdís.
Við Sveinbjörn gerðumst svo myndarleg og elduðum okkur dýrindis kjúklingabringur og aumkuðum okkur yfir Miss Smass og buðum henni að koma og fá sér smá óhollustu. Við skötuhjúin opnuðum rauðvínsflösku með matnum sem undirrituð drakk hressilega af og varð svona líka hress og kát á meðan matnum stóð og kom með fögur fyrirheit um djamm og skemmtilegheit. Auðvitað uppveðraðist Erna þar sem ég er ekki vön því að eiga frumkvæði að djammi. Kvöldið var mjög skemmtilegt þar sem nokkrir sehr-skemmtilegir einstaklingar kíktu í heimsókn og enduðu niður í bæ. Ég er alltaf að gleyma hvað mér finnst leiðinlegt niður í bæ, skil ekki hvað ég er alltaf að fara þangað. Reyndar förum við alltaf á Hverfis og það finnst mér voða lítið skemmtilegur staður. Þarf að fara að finna mér einhvern skemmtilegri. Það var ekki einu sinni góð tónlist í gær - þvert á móti. Bara svona tónlist sem er EKKI hægt að dansa við, maður stendur bara hálf kyrr og dillar sér smá! Fúlt! Þegar ég er á annað borð að dansa við ég hafa smá ACTION og fjör! Nenni ekki svona hálfkáki!
Þegar við komum heim um nóttina var búið að brjóta bréfalúguna okkar af hurðinni og setja feitt svart skófar í staðinn - skemmtileg aðkoma! Ég lét Sveinbjörn spæjó taka mynd af þessu til að senda CSI svo að þeir geti fundið eiganda skófarsins. Bíð spennt eftir niðurstöðunum. Eitt er víst - ég ætla ekki að borga fyrir heimskupör einhverrar fyllibyttunnar sem ákvað að það væri fyndið að sparka bréfalúguna mína af. Vona svo sannarlega að hann hafi meitt sig í fætinum!

Sunnudagur:
Einhver þreyta í mannskapnum sem ætlar að vera ofur duglegur að læra í dag. Ennþá í náttfötunum og kl. að ganga þrjú! Mamma gaf mér svo notalegar náttbuxur um daginn og ég fæ mig eiginlega ekki til að fara úr þeim. Svo sakar ekki fyrir að þær eru bleikar og ég á bleikan hlýrabol, náttslopp og allt í stíl :) Ég er svo efni í Löglega ljósku! Pink is the new Red!

Hafdís skrifaði klukkan 2:10 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli