15.9.04
Merkilegur dagur í dag!

Tengdamamma á afmæli. Ef hún yrði spurð myndi hún segjast vera 16 ára í anda en að líkaminn væri 85 ára! Spurning um að ég skelli í eins og eina köku handa henni og færi henni! Þá fengi ég áreiðanlega prik!

Við Sveinbjörn eigum þriggja ára afmæli í dag. Hann pikkaði mig sem sagt upp á balli fyrir þremur árum! Í stuttu máli var ég að læra þetta kvöld, þá var ég í sjúkraþjálfun og nennti stundum að læra. Rakel vinkona mín hringdi í mig úr einhverju verkfræði-hjúkkupartýi og var a leyfa mér að heyra stemninguna og hvetja mig til að mæta á svæðið. Þar sem ég var hvort eð er búin að horfa á sömu blaðsíðuna í all langan tíma dreif ég mig bara í fötin og skutlaðist í partý. Þar fékk ég mér 1-2 og tók rútuna á ballið frá Skipholti og skildi kaggann eftir. Á ballinu var frekar fámennt en góðmennt. Við vinkonurnar dönsuðum við fullt af gæjum og þar á meðal einn sætann í skyrtu með bindi. Við tvö tókum einn svaðalegan dans á miðju gólfi þar sem hann fór úr jakkanum og henti honum yfir mig og dansaði með mig fram og tilbaka og lét mig beyja mig niður í gólf aftur og aftur - gott að ég var í góðu formi. Á meðan ég kíkti á barinn með vinkonum mínum hvarf þessi myndarlegi maður en þar sem ég kannaðist aðeins við einn vin hans grunaði mig hvar ég gæti fundið hann aftur. Ég rölti því upp í Skipholt og sótti bílinn enda margir tímar síðan ég drakk þess 2 bjóra, rúllaði niður á Felix eða Sportkaffi eins og það hét þá og fann strákinn á dansgólfinu. Ég var ekki lengi að draga hann afsíðis og táldraga hann! Á þessum árum var ég nefnilega skæður daðrari og með kúlurass dauðans svo að þetta var ekki mikið mál. Hann var líka bara 60 kíló svo að ég hefði léttilega getað tekið í lurginn á honum! Þegar ég sagði honum að ég væri edrú rann fljótlega af honum en hann kættist þegar ég bauð honum far heim! Í fyrsta skipti á ævinni komst ég ekki að þar sem hann samkjaftaði alla leiðina. Ég varð fljótlega mjög heilluð og beið spennt næsta dag eftir símtali frá honum. Hann hringdi ekki fyrr en um kvöldið þar sem hann vildi hafa eitthvað að gera þegar hann hringdi í mig. Hann var sem sagt á videoleigu með strákunum og tilkynnti mér þar að hann hefði viljað hafa eitthvað að gera þegar hann hringdi! Mér fannst þetta mjög krúttlegt og hló bara að honum. Ég sótti hann svo til vina sinna um kvöldið og síðan þá höfum við verið nær óaðskiljanleg. Núna er hann reyndar í rómantískum hádegisverði með vinum sínum á American Style og á morgun fer hann í rómantíska fyllerísferð með strákunum til Köben á meðan ég sit heima með sárt ennið!
Ég er einverunni hins vegar vön - hlakka bara til að fá allt rúmið og geta djammað af mér rassinn öll kvöldin ;) Þá verðir enginn til að draga mig heim...snemma!



Hafdís skrifaði klukkan 11:37 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli