|
|||||||||||||||||||
|
4.9.04
Margt hefur á daga mína drifið.
Ég var álitin skrýtin á miðvikudaginn þegar ég sást skokka og tala upphátt við sjálfa mig um leið. Ástæðan var þó sú að ég var að skokka með útvarpið mitt sem er lukkulega staðsett í símanum mínum og Ernan mín hringdi í mig til að segja mér eitthvað svaðalega merkilegt og þegar ég hafði lokið við að tala við hana fannst mér soldið skondið að hringja bara í Tótu og spjalla við hana í smástund. Henni fannst ég bara fyndin, ég lét hana mása í símann svo að það væri eins og hún væri að skokka með mér ;) Fólk sem mætti mér horfði skringilega á mig og var nokk viss um að ég væri hálf vangefin eitthvað. Vonandi hafa einhverjir haldið að ég væri svona busy að ég þyrfti að sinna nokkrum málum á meðan ég hlypi. Djöfull væri fyndið að þykjast vera að tala við einhvern verðbréfamiðlara eða eitthvað á meðan maður hlypi! Ég ætla að prófa það einhvern tímann... Í gær var frí í skólanum. Mín skellti sér af því tilefni í klippingu þar sem svona eins og þrjú þúsund hár fengu að fjúka - aftur orðin voða stutthærð. Þetta voru þó blendnar tilfinningar þar sem klippikonan mín góða flutti til Danmerkur í ágúst og ég sakna hennar mikið. Ég þurfti að fara til nýrrar og var eiginlega ekki par hrifin af því. Hún klippti mig þó ágætlega svo að ég get svo sem ekki kvartað.... Í gærkvöldi fórum við nokkur úr ÍR-FH og UMF Auður að líta á nýju íbúð Sigurjóns og Jóhönnu sem er btw sérlega hugguleg. Það var sérlega gaman. Ég var búin að ákveða að þetta yrði bannað-að-gera-grín-að-Hafdísi dagur en þetta varð gerum-bara-grín-að-Hafdísi dagur. Voða gaman fyrir alla nema mig. Þar urðu til að mynda til nokkrir nýjir Cheerios brandarar, hláturinn minn var tekinn upp öðrum til skemmtunar, kertaljósastemning var rifjuð upp auk margs annars. Sérlega skemmtilegt fyrir alla nema mig sem sagt! Annars er ég orðin svo vön þessu að ég hlæ örugglega bara mest! Ég fékk þó bara einu sinni harðsperrur í magann í gær af því að ég hló svo mikið...fínt að gera auk magaæfingar á kvöldin. Í dag er árshátíð Saumóz, sem er saumaklúbburinn minn. Við erum 8 skvísurnar - ein er reyndar í Köben að læra og er því löglega afsökuð en við hinar ætlum að skella okkur út að borða á Við Fjöruborðið og svo förum við í sumarbústað upp í Laugarás sem er einmitt rétt hjá Laugarvatni. Ég er í skipulagsnefnd svo að þetta verður pottþétt geðveikt skemmtilegt. Við erum búnar að plana fullt skemmtilegt til að gera uppí bústað. Ég hlakka svakalega til! Sveinbjörn ætlar að nýta tækifærið á meðan yfirvaldið fer út úr bænum og ætlar að djamma feitt með strákunum. Mýsnar bregða á leik á meðan kötturinn bregður sér frá... Þetta verður sem sagt væntanlega góður dagur í dag... Vona að hann verði góður hjá ykkur líka! Hafdís skrifaði klukkan 1:32 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||