2.9.04
Lok, lok og læs og allt í stáli!

Ég lenti í frekar neyðarlegri aðstöðu í dag. Ég þurfti að fara á klósettið á milli tíma og þar sem milljón stelpur voru í röð á fyrstu hæð hljóp ég bara upp á aðra þar sem bæði voru laus. Ég valdi af handahófi það sem var fjær og læsti. Lásinn var þó eitthvað skrýtinn og ég þurfti því að snúa tvisvar til að læsa. Um leið og hurðin var læst grunaði mig að ég ætti eftir að eiga í vandræðum með að komast út - sá grunur minn reyndist á rökum reistum. Þegar ég hafði lokið mér af komst ég ekkert. Það var hægt að snúa takkanum í báðar áttir í marga hringi án þess að neitt gerðist. Ég sýndi smá þolinmæði og þrjósku og snéri í báðar áttir í smá stund, lyfti upp húninum og snéri, togaði í hurðina og snéri, prófaði að taka lausar á takkanum og fastar og til að gera langa sögu stutta prófaði ég allar aðferðir sem mér datt í hug. Þegar ég var u.þ.b að gefast upp kemur stelpa og opnar fyrir mér. Þá hafði hún heyrt mig snúa og rykkja í hurðina og var svo sniðug að taka tíkall og snúa lásnum að framan. Þetta var sko svona sérstakur lás. Gaman að því að hún hafi vitað að tíkall myndi opna klósettið - hver ætli hafi sagt henni það? Ég var henni mjög þakklát þar sem ég var ekki alveg hrifin af því að hringja í vinkonur mínar til að tilkynna þeim að e´g væri læst inni á klósetti. Ekki góð byrjun á skólaárinu að ræsa út einhvern húsvörð til að opna hurðin á klósettinu. Kemst ekki hjá því að hugsa hvernig það hefði litið út ef ég hefði verið að gera nr.2...það hefði nú verið gaman!
Gott að ég er ekki með innilokunarkennd eða claustrophobic eins og það heitir á sálfræðísku!

Hafdís skrifaði klukkan 5:21 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli