|
|||||||||||||||||||
|
14.9.04
Heppna ég hitti eina NYLON gellu í Sporthúsinu í gær. Hitti þessa ljóshærðustu. Hún var minni og ljóshærðari en hún virðist vera í snilldarþáttunum sem voru á Skjá Einum. Samt virtust einhver tveir vera voða spenntir fyrir henni og vorum eitthvað að spjalla við hana og sýnast.
Það er samt eitt sem hún er greinilega ekki nógu góð í og það er að klæða sig í stíl. Íþróttafötin hennar voru alveg út úr kú! Maður er ekki í dökkbláu buxum við skærgulan hlýrabol með mynd af einhverju í lit og engu bláu. Veit ekki hvað hún var að spá. Ég tók greinilega vel á því þar sem ég er með frekar miklar harðsperrur í rassinum og lærunum en það eru einmitt tveir af 12 stöðunum sem ég er hrifin af harðsperrum. Vona bara að þetta sé allt að minnka... ;) Ég þurfti að fara á 4 staði í dag til að kaupa lítið batterí í þráðlausa símann hennar Begg´ömmu og þegar ég kom loksins með símann tilbaka með nýju batteríunum virkaði hann ekki, það heyrðist bara eitthvað suð í tækinu þegar ég setti hann í hleðslu. Þurfti að fara aftur á staðinn sem ég fór með batteríið til að láta athuga þetta og kallinn var á því að síminn væri ónýtur. Frekar fúlt! Begga amma var ekki mikið hrifin af þessu - hún tekur símann nánast með sér hvert sem hún fer! Eitt sem ég er búin að vera að velta fyrir mér - hvort segið þið amma x eða x amma. Ég hef alltaf sagt nafnið á undan og titilinn á eftir en undanfarið hef ég heyrt það hinsegin. Hafdís skrifaði klukkan 4:22 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||