|
|||||||||||||||||||
|
22.9.04
Það getur stundum verið erfitt að búa með verkfræðing!
-Ég veit mjög mikið um hluti sem venjulegt fólk hefur ekki hugmynd um. -Ég er reglulega yfirheyrð um hvaða átt við séum að fara í. -Ég veit að verkamenn á Íslandi eru mjög latir. -Ég skil hvernig margar brýr eru uppbyggðar og hvar þær eru styrktar, hvað gerist ef það kemur flóð. -Ég skil hvernig hús eru byggð, að hverju þarf að huga. -Ég veit hvernig svalir eru gerðar. -Ég veit að meirihluti þjóðarinnar aðhyllist NIMBY! Ég skil vegaframkvæmdir og malbikunarframkvæmdir og þar af leiðandi er ég ósammála 76% þjóðarinnar (800 manna úrtak) sem vilja frekar fá mislæg gatnamót á Kringlumýrarbraut og Miklubraut heldur en Sundabraut. Ég vil endilega láta laga gatnamótin fyrrnefndu þar sem það er vonlaust að beygja frá Kringlumýrarbraut og yfir á Miklubraut - sér í lagi núna eftir að það er ekki lengur hægt að beygja frá Bústaðarvegi og hingað í hverfið með því að aka framhjá Umferðarmistöðinni. Ég veit samt að fólk yrði geðveikt á meðan framkvæmdunum stæði þar sem þær myndi raska umferðinni í langan tíma og lausn gatnamótanna yrði lítil. Stíflan myndi bara færast yfir á næstu gatnamót á eftir - gatnamótin Miklabraut-Langahlíð! Það er greinilegt að fólk er ekki alveg að hugsa þetta í gegn. Auðvitað vil ég auka umferðaröryggi á þessu svæði - ég er jafn lítið hrifin af umferðarslysum og hver annar. Ég held að framkvæmdirnar sem R-listinn hyggst gera á títtnefndum gatnamótum séu einmitt til þess gerðar að bæta umferðaröryggi. Þar sem sér beygjuás verður á hverri akgrein. Ég skil ekki þessi 76% - langar að vita hvað þau eru að hugsa! Hvernig eru mislægu gatnamótin betri en Sundabraut? Jú, það eiga margir leið niður í bæ - þar sem fólk er svo vitlaust að búa í allt öðru hverfi en það vinnur. Reykjavík er svo heimskulega uppbyggð að fólk býr í einu hverfi og vinnur í öðru sem er oft 20-30 km í burtu. Þess vegna eru 2-3 bílar á hvert heimili- þess vegna er umferðaröngþveiti - þess vegna er verið að tala um ný gatnamót hér og þar. Þegar við verðum stór ætlum við að reyna að búa sem næst staðnum sem alla vega annað okkar vinnur á svo að við þurfum ekki 2 bíla! Foreldrar mínir voru svo sniðugir að gera þetta þegar við fluttum. Pabbi vann hjá ÍS sem var með höfuðstöðvar í Sigtúni og því labbaði hann í vinnuna á hverjum degi og mamma fékk að hafa bílinn. Mamma er að vinna upp á Höfða og þarf því eðlilega að fara á bílnum. ÍS sameinaðist svo SÍF og flutti til Hfj. og þar með þurftum við á öðrum bíl að halda. Þetta var mér reyndar til góðs þar sem ég fékk afnot af þeim bíl! Skipulag Reykjavíkurborgar er í molum og í raun er ekkert skipulag á borginni. Hún er skipulagslaus! Fólk vill fá mislæg gatnamót og tvöföldun akgreina hér og þar en ekki NIMBY - NIMBY er Not In My BackYard. Fólk vill með öðrum orðum fá fullt af hlutum en það vill ekki hafa það nálægt sér. Fólk er ekki hrifið af öllum þessum bensínstöðvum en það vill ekki missa þá sem er næst þeim. Í raun hugsa allir um sinn hag en ekki hag heildarinnar! Ég vil þakka honum Sveinbirni mínum fyrir að hvetja mig til rökhugsunar og að velta þessum hlutum upp með mér. Hann kom þó ekki nálægt skrifum þessarar greinar þar sem hann var upptekin í tölvuleik og líklega kommentar hann ekki á hana þar sem hún er of löng til að hann nenni að lesa hana til enda. Vonandi nennti samt einhver að lesa þessar hugleiðingar mínar. Hafdís skrifaði klukkan 11:24 f.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||