|
|||||||||||||||||||
|
21.9.04
Ég veit ekki hvað er að gerast með mig!
Sveinbjörn kom heim í gærdag, ég sótti hann og hinar fyllibytturnar út á flugvöll og fyrsta stopp var síðan American Style þar sem það er nauðsynlegt mjög eftir gott fyllerí og þeir tóku jú fjögur strákarnir! Það er hins vegar ekki það skrýtna að ég sé að sukka, það myndi frekar teljast vera ósköp eðlilegt! Við komum heim og höfðum það gott á meðan við biðum eftir leiknum, Sigurjón og aðrir viðkvæmir eru beðnir að lesa ekki næstu línuna, náðum upp nokkrum knússtundum og bættum okkur upp kossamissi. Ég veit síðast af mér kl.6 þar sem ég bíð eftir leiknum og næst kl.7 þegar tengdamamma hringir - þá skríð ég upp í rúm og ranka ekki við mér fyrr en kl.8. Þarna var ég sem sagt búin að leggja mig í tvo tíma um ,,há"bjartan dag! Þetta er MJÖG ólíkt mér og ég veit ekki hvað gerðist. Ég væri hins vegar ekki jafn sjokkeruð ef þetta hefði ekki komið fyrir aftur í dag þegar mín sofnaði ofan á annarri höndinni og bókinni minni og vaknaði rúmum klukkutíma síðan við blóðleysi, náladoða og önnur óþægindi í höndinni góðu. Ég veit ekki hvað þetta á að þýða. Ég hef ekki nennt að leggja mig áður svo að ég skil þetta ekki! Mig grunar að 24 aldursárið sé að færast yfir mig og þar með veit ég að samkomulag mitt við æðri máttarvöld um að ég myndi ekki eldast meðan á rjúpnaveiðibanninu stæði er ekki að standast. Ég ákvað í samráði við máttarvöldin að ég myndi yngjast í stað þess að eldast næstu árin en ég finn að eitthvað hefur klikkað í þessu ráðabruggi. Ég óttast að ég verði 24 eftir alltof fáa mánuði og ég veit ekki hvað gerist þá. Fyrir nokkrum árum var ég búin að ákveða að eignast mitt fyrsta barn 24 ára - mamma var að verða 24 þegar hún eignaðist mig og mér fannst það skemmtilegur aldur til þess að eignast barn. Núna er ég á öndverðu meiði - mér finnst ég vera allt of ung. Spurning um að sannfæra sig bara um að ég yngist alltaf um eitt ár næstu 2 árin í viðbót og þá get ég frestað þessu um svona 5 ár eða svo :) Gott plan! Mamma verður reyndar ekki ánægð með að fá ekki barnabarn fyrr en eftir 5 ár þar sem ég var búin að lofa henni því innan 3 ára...sjáum bara til. Ég sættist kannski við að fara milliveginn og punga bara einu út eftir 4 - það er að segja ef Sveinbjörn endist svona lengi... En nóg af barnahjali... Ég var að bæta Guðnýju vinkonu minni og að hluta sálufélaga inn - hún var að byrja að blogga. Ef síðan verður eitthvað lík henni verður hún alveg frábær - kíkið á hana! Hafdís skrifaði klukkan 7:17 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||