|
|||||||||||||||||||
|
1.9.04
Ég var soldið svikin í morgun!
Ég hafði soldið fyrir því að taka með mér eitthvert góðgæti í vinnuna þar sem þetta er seinasti dagurinn minn í dag. Í gærkvöldi keypti ég tonn af ávöxtum, bakaði svo ísköku og frysti og ákvað að vakna soldið fyrr til að skella í eina skúffuköku. Ég kom þessu haganlega fyrir úti í bíl. Setti ískökuna í framsætið þar sem skálin sem hún var í var brothætt og viðkvæm. Sér í lagi þar sem ég var nýbúin að frysta hana vel og rækilega! Ég kom svo skúffukökunni fyrir í aftursætinu, var samt ekki búin að setja á hana krem þar sem hún var ennþá alltof heit! Ég keyrði extra varlega þar sem ég vissi að snöggt brems myndi henda kökunum fram og tilbaka. Þegar ljótur skóti svínaði svo á mig þegar hann kom út úr hlíðunum og inn á Miklubraut gerðist það einmitt. Ofursnögg viðbrögð mín leiddu til þess að ég keyrði ekki á hann og gat forðað ískökunni frá því að hendast í mælaborðið. Ég gat hins vegar ekki gripið skúffukökuna sem hentist í sætið og datt svona skemmtilega í tvennt niður á mottu. Hún var ennþá of heit til að ég gæti komið henni aftur í formið í góðu ásigkomulagi og því bíður hún bara í bílnum eftir því að vera borðuð á Eggertsgötu. Á Eggertsgötunni er fólk nefnilega ekki pjattað yfir útliti kaka og kippir sér ekki mikið upp við að borða upp af eins og einni hreinni bílmottu. Ég er að hugsa um að bræða bara krem ofan á kökuna þar sem hún er þannig í laginu að erfitt er að smyrja á hana... Konurnar urðu því af dýrindis skúffuköku og bentu mér á að ég hafði átt að teygja mig aftur í og kasta bita af kökunni í kallinn. Það hefði verið helvíti fyndið en mikil sóun á góðri köku. Það er nefnilega vel hægt að borða hana... Ískakan vakti þó mikla lukku - hún er líka sérlega góð. Ég er því búin að bæta einni enn góðri köku í safnið. Gjörðaforði minn stækkar ört! En ef ég finn kallinn aftur sem svínaði þá á hann ekki von á góðu. Gleymdi nefnilega að taka fram að það var ENGINN bíll fyrir aftan mig svo að hann hefði bara þurft að bíða í nokkrar sekúndur í viðbót. Karlmenn gera sér greinilega ekki grein fyrir því að konur eru stundum með kökur í aftursætunum! Hafdís skrifaði klukkan 2:19 e.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||