8.9.04
Ég keypti námsbækurnar mínar í gær - 22000 takk fyrir. Fannst ég samt sleppa nokkuð vel þar sem þetta hefur oft verið verra. Komst svo að því í dag að ég þarf að kaupa auka lesefni í Félagslegri sálfræði og heftIN í því fagi kosta 6600 samtals. Þau eru sem sagt 4 aukalesheftin og kosta samtals meira en bókin sjálf sem ég þurfti að kaupa! Í þessu fagi eru sem sagt bækur/hefti að andvirði rúmlega 13000 króna! Mér finnst þetta heldur mikið rugl. Heftin eru reyndar 833 bls að lengd svo að blaðsíðan er á tæpar 8 kr. en þetta er samt alltof mikið. Halda þessir kennarar að við séum multimillar eftir sumarið? Ég þekki engan eldri nema svo að ég get ekki fengið þessi hefti neins staðar. Setti reyndar inn auglýsingu á kassi.is en ég er ekki viss um að hún virki.

Ég er fátæk!

Hafdís skrifaði klukkan 2:58 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli