23.9.04
Ég hef ákveðið að breyta þessari heimskulegu grein minni.

Það sem ég skrifaði var annað hvort misskilið eða gagnrýnt svo að ég ákvað að einfaldast væri bara að taka það út og skrifa eitthvað gáfulegra.

Málið var sem sagt að ein sérlega athyglisgóð vinkona mín veitti því athygli að ég skrifaði hlægja en ekki hlæja og benti mér góðfúslega á þetta svo að ég gæti lagað þetta. Ég var á því að ég hefði verið að skrifa rétt með því að nota g en hún var á því að þetta væri vitlaust.
Við erum búnar að útkljá málin og í ljós koma að:

Hlægja: að kæta, vekja hlátur
Hlæja: gefa frá sér hlátur.

Þá er það komið á hreint.
Annars vil ég koma því á framfæri að mér finnst fólk ekki heimskt sem gerir stafsetningarvillur. Ég er bara þannig af guði gerð að ég er ekki mikið hrifin af þeim og bið því Burkna að gera í því að fræða mig en um leið vil ég biðja hann að leiðrétta mig ekki bara benda mér á villurnar.

Takk fyrir og góðar stundir,

Hafdís skrifaði klukkan 10:37 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli