|
|||||||||||||||||||
|
24.9.04
Ég hef alveg gleymt að tilkynna eitt það markverðasta sem gerst hefur hér á Eggertsgötunni undanfarið. Fyrir rúmri viku síðan var hringt í Sveinbjörn og hann beðinn um að taka þátt í Herra Ísland, ég ætla ekkert að nefna hver benti á hann en það var mamma hans. Jú, mikið rétt, hverjum þykir sinn fugl fagur. Ég er að sjálfsögðu búin að reyna að sannfæra hann um að hann sé ekki nógu fallegur í þess keppni* en hann hlustar ekkert á mig. Þess vegna dreif hann sig í viðtal og sprangaði um á nærbuxum og sýndi fram á að það væri eitthvað á milli eyrnanna á honum. Til að gera langa sögu stutta var hringt í hann fyrir viku og honum tilkynnt að hann hefði verið valinn úr hópi trilljón umsækjanda. Hann er enn að íhuga hvort hann taki þátt þessi elska þar sem keppnin verður haldin 17.desember en þá er hann á fullu í prófum. Þessar konur sem stjórna þessu eru greinilega ekki að leita að neinum háskóla og menntaskólamönnum í hópinn með smiðunum, múrurunum og sjómönnunum. Ég veit ekki hvað þessar fegurðardrottningar og wannabe drottningar eru að hugsa - hvað er ég að segja auðvitað hugsa þær ekki, þær kunna það ekki!* Svona í alvörunni þá veit ég ekki hvað þær eru að pæla, það geta engir strákar tekið þátt í þessu sem eru í skóla þar sem þeir eru í prófum og það er vitað mál að seinustu vikurnar fyrir keppnina eru erfiðastar. Þetta eru svo mikil atriði sem þeir sýna.*
Hann var svo heppin þessi elska að fæðast á röngunni þar sem fegurðin kemur innan frá... Hann er sem sagt ekki búin að ákveða hvort hann keppir eður ei, ég læt ykkur bara vita þegar nær dregur svo að þið getið beðið spennt fyrir framan sjónvarpið til að gera grín að honum. Brandarar eru líka vel þegnir! Ég er vön því að það sé bara gert grín að mér - ég er auðveldur skotspónn. Verður fínt ef fólk finnur það í sér að gefa mér smá frí og gera þess í stað grín að honum. Það myndi vekja kátínu! *kaldhæðni Hafdís skrifaði klukkan 10:50 f.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||