12.9.04
Ég gekk í barndóm í gær þegar ég lá á gólfinu og litaði með 6 ára frænku minni. Ég hafði alveg gleymt hvað það er gaman að lita og gleyma sér í smá stund. Er þess vegna að hugsa um að kaupa mér litabók og liti, fá lánaðann plötuspilarann hennar tengdó og ganga enn meira í barndóm. Þegar ég var yngri var ég mjög dugleg við að liggja fyrir framann annan hátalarann inni í stofu með einmitt litabók og litina mína og hlusta á Smjattpattana, Dýrin í Hálsaskógi. Kardemommubæinn og fleiri góðar plötur. Þetta voru góðir tímar. Hefði ekkert á móti því að sitja fyrir framann sjónvarpið og lita - það er voða notalegt.

Hvernig dunduðuð þið ykkur þegar þið voruð lítil?

Hafdís skrifaði klukkan 1:25 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli