2.9.04


Fyrsti skóladagurinn var í dag. Ég mætti ræs and shæn í Odda kl.8:15 og náði að einbeita mér þokkalega að því sem kennarinn sagði. Ég veit alla vega núna að ég þarf að lesa svona 2000 bls. í því fagi á þessari önn+það að gera feitt rannsóknarverkefni. Tillögur að rannsóknarverkefnum eru vel þegnar og fyrir hverja tillögu fæst ein kökusneið. Sú sem ég vel síðan fær kaffiboð í verðlaun og þá er ég að tala um kökur og brauðrétti að eigin vali í eins miklu magni og óskað er eftir! Eina skilyrðið sem ég set er að rannsóknin fari fram á háskólasvæðinu ástæðan fyrir því skilyrði mínu er að kennarinn sagði að við ættum að gera það!
Þið getið annað hvort skrifað ykkar tillögu í athugasemdaboxið hér að neðan eða sent mér hana í pósti. Ég mun velja bestu tillöguna fimmtudaginn 16.september.
Sem dæmi um rannsókn get ég nefnt að tvær stelpur rannsökuðu hvað fólk gerir þegar einhver kemur inn á þeirra ,,svæði". Þær settu upp myndavél á háskólasvæðinu og voru með vitorðsmann sem að labbaði mjög nálægt fólki vissa vegalengd og viðbrögð þess voru könnuð. Eftir á var fólk spurt afhverju það hefði hagað sér á þann hátt sem það gerði. Í ljós kom að mjög margir þurftu allt í einu að reima skóna sína eða laga sig á einhvern hátt sem hafði þær afleiðingar að fólkið þurfti að stoppa eða hægja á sér. Mér finnst þetta frekar áhugaverð tilraun þar sem ég hef fylgst með viðbrögðum fólks þegar ég labba hraðar en það og dreg smám saman á það þangað til að ég er komin mjög nálægt. Viðbrögðin þeirra eru yfirleitt þau að hægja á sér svo að ég sé fljótari að fara fram úr. Mér finnst þetta nokkuð skondið. Hvað ætli einhver myndi gera ef hann væri að taka fram úr mér og ég myndi gefa í og labba á sama hraða og viðkomandi? Ætli hann myndi hægja á sér og leyfa mér bara að vera á undan eða hlaupa til að komast fram fyrir? Áhugavert - ég get kannski bara athugað þetta?
Sendið mér alla vega tillögu ef ykkur dettur eitthvað í hug!

Hafdís skrifaði klukkan 5:04 e.h. |


Comments: Skrifa ummæli