10.9.04
Brussuskapur Hafdísar - 14.kafli.

Í gærkvöldi langaði mig allt í einu svo mikið í vöfflur með súkkulaði og gervirjóma. Myndarlega húsmóðirin sem ég er bætti 2 dl af vatni út í deig og hrærði í smá stund og setti svo slurk í vöfflujárnið. Á meðan þessu stóð var ég líka að búa til súkkulaði í potti - mér finnst mjög nauðsynlegt að vera að gera margt í einu. Taka skal fram að vöfflujárnið okkar er frekar leiðinlegt, vöfflurnar eiga það til að festast í járninu þrátt fyrir að það sé olíuborið og dekrað við það í alla staði. Í gær var ég sem sagt að vesenast við að opna járnið án þess að kippa vöfflunni í tvennt þegar ég smellti litla puttanum mínum einhvern veginn undir það á stað sem að ég hélt að væri hættulaus en þá var hann bara 100° heitur eða eitthvað og ég brenndi mig svona skemmtilega framan á greyinu. Í fyrstu hélt ég að þetta væri bara smávægilegt en eftir baksturinn fann ég að hann var ekkert að skána og dró því fram ALOE VERA gel sem ég fann einhvers staðar. Það linaði aðeins sársaukann en þó ekki mikið. Ég komst þó í gegnum CSI áður en ég fór að kanna skaðann. Skyndilega fann ég mun meira til í puttanum og áttaði mig á því að þetta væri áreiðanlega 3 gráðu bruni og að puttinn myndi detta af.Þá kom í ljós að ég væri með þessa líka feitu og fallegu blöðru á puttanum. Eftir að hafa sett fjall af Aloe vera á hana og sofið með bómullarhanska held ég að bruninn sé að lagast og að ég verði sem ný. Mig grunar líka að puttinn haldist á...
Núna er ég með þrjú ör eftir bruna á vinstri hönd - gerir aðrir betur.

Hafdís skrifaði klukkan 10:33 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli