17.9.04
Annað hvort er ég að verða geðveik, einhver var að reykja eitthvað sterkt fyrir utan gluggann minn sem barst ofan í vitund mín og ég var HI, mig var að dreyma eða þá að einhver fékk afmælislagið spilað fyrir sig á básúnu, eða eitthvað álíka, í morgun kl.7.40 og fullt af fólki var mætt til að fagna! Mér finnst líklegast að mig hafi verið að dreyma en samt er ég nokkuð viss um að ég hafi vaknað og ég man ekki eftir að mér hafi liðið neitt furðulega. Reyndar var ég búin að sofa extra lítið þar sem mér gekk eitthvað erfiðlega að sofna í gærkvöldi og náði ekki að pína ofurþreyttu augun mín saman fyrr en kl.3.
Hve mikið rugl er það að hlusta á afmælissönginn og he´s a bloody good fellow kl.7.40? Ekki yrði ég kát ef ég yrði vakin mygluð snemma morguns til að hlusta á básúnu spila og fullt af fólki myndi horfa á mig með stírurnar í augnum og slefið út á kinn - reyndar slefa ég ekki í svefni, mér fannst það bara áhrifaríkara með því!

Ég get samt alveg vakið einhverja áhugasama með því að panta básúnu, túbu eða trompetleikara - jafnvel saxófón. Ég hefði til að mynda mjög gaman af því að vekja nokkra vini mína svona á afmælisdaginn - nefnum enginn nöfn en ég held að sá hinn sami viti hvern ég er að hugsa um ;)

Ég vaknaði svo fyrir 20 mínútur við það að einhver gella hafði misskilið auglýsinguna mína á kassi.is - hélt að ég væri að selja heftin en ekki að óska eftir þeim. Vonandi lærir hún að lesa áður en hún heldur áfram í náminu!

Hafdís skrifaði klukkan 10:20 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli