3.8.04
Það var leti-lærdómsdagur í gær.
Náði að læra soldið en þurfti alveg að hafa fyrir því. Reyndar er námsefnið heldur ekki það áhugaverðasta svona í byrjun bókar en það lagast vonandi þegar lengra dregur.
Við Sveinbjörn eyddum svo restinni af deginum í leti. The O.C var kvaddur með tárum og trega - dramatískt mjög í stíl við þema þáttanna. Það er óþarfi að taka fram að ég grét fögrum tárum og Sveinbjörn hló að mér. Fyrir vikið splæsti ég á hann pizzu - almennileg.
Við tókum okkur svo til og horfðum á Butterfly effect seint í gærkvöldi, það eina sem klikkaði var endirinn á myndinni. Góðu myndir sem Sveinbjörn fjárfesti í...nú þurfum við bara upplýsingar um seinustu 2 mínúturnar eða svo! Hver hefur séð hana?
Síðan var óbærilegur hiti í herberginu og því gátum við ekki sofnað fyrr en seint og um síðir!

Já, á meðan ég man. Ótrúlegir hlutir gerðust í gærdag - ég, Hafdís Ósk, lagði mig seinni partinn. Það tók mig reyndar soldinn tíma að sofna en það hófst. Held að ég hafi meira að segja sofið í næstum 2 tíma. Já kraftaverkin gerast enn! Fyrst léttist ég og síðan legg ég mig...

Hafdís skrifaði klukkan 11:54 f.h. |


Comments: Skrifa ummæli