|
|||||||||||||||||||
|
20.8.04
Það var afskaplega hressandi að vakna kl.6:45 í morgun eftir að hafa sofið í kyrrð og ró í þrjár nætur. Við Sveinbjörn skelltum okkur í sumarbústað á mánudaginn og undum hag okkar í kyrrðinni og lásum misskemmtilega kafla og reglur. Þess á milli horfðum við svo á Ólympíuleikana og hámuðum í okkur mat og óhollustu. Í sveitinni var það mikil kyrrð að ég vaknaði við sjálfa mig þegar ég var að snúa mér, það var það hljótt að armbandsúrið mitt var mín helsta truflun þar sem ég heyrði tikkið í því og setti það á endanum undir alls kyns kodda og dót! Í morgun vaknaði ég hins vegar kát við vekjaraklukkur nágrannanna sem hringdi í smá stund áður en þau slökktu. Ég náði þó að sofna aftur og get því ekki kvartað mikið. Síðar um morguninn vakti svo sólin mig með því að kynda svefnherbergið upp í rúmar 20° og þá er ómögulegt fyrir mína að sofa!
Við renndum í bæinn seinnipartinn í gær, ég var búin að gleyma öllu þessu bílaflóði sem er í þessari borg. Það er alltof mikið af bílum og röðum og bið í þessari umferð. Það er ekki annað hægt en að pirrast - alla vega fátt annað til. Ég hef sérstaklega gaman af því að horfa á Ólympíuleikana í sjónvarpinu þessa dagana, ég er búin að fræðast um margar íþróttagreinar sem ég hafði ekki hugmynd um áður. Núna veit ég til að mynda ýmislegt um strandblak, bogfimi, sund, siglingar, blak og júdó sem ég hafði ekki hugmynd um áður. Ég bíð að sjálfsögðu mest spennt eftir keppni í minni grein, frjálsum íþróttum en fram að því hafa fimleikar átt hug minn og hjarta. Ég hef sérlega gaman af því að horfa á fimleika og sjá þessar títlur hoppa og skoppa og snúast fram og tilbaka. Við Sveinbjörn sátu límd yfir liðakeppni kvenna um daginn og í gærkvöldi yfir einstaklingskeppni kvenna. Það fór aðeins minna fyrir karlakeppninni þar sem við rugluðumst aðeins á dagskránni og lágum í pottinum þegar hún fór fram. ( á meðan ég man - þá skil ég ekki hvernig ónefnd vinkona mín getur legið i pottunum í 2 tíma. Ég var alveg dauð eftir tæpan hálftíma) Sveinbjörn er að fara í próf eftir hádegi og er svona nánast að springa úr stressi svo að ég ætla að fara að hughreysta hann aðeins. Annars verð ég bara að tapa mér í lærdómi í dag, á eftir að læra slatta fram á mánudag! Góðar stundir, Hafdís skrifaði klukkan 11:05 f.h. |
Comments:
Skrifa ummæli
|
UM MIG
MYNDIR AfmælispartýKöben Kanarí Landsmót TENGLAR Vinir:Sigurjón Erna Dögg Kristín Birna Einar Karl Bergur Bjöggi Lovísa Berglind Helgi Skúli Sálfræðiskvísur: Agnes Björg Hildur, Eva og Heiða Eva Rós Hildur, Fjóla og co. Frjálsíþróttafólk: Silja & Vignir Ásdis Óli Björn Eygerður Inga Jónas Hlynur Sigrún Þórey Vigdís Hallbera Ragnar Frosti Tóta Félagar: Árni Ásgrímur Björn Þór Bylgja Elías Ívar örn María og Óli Sandra Steingrímur Ragnheiður Kristín Nokkrar góðar: Myndasíða Sigurjóns Frjálsar.com Saumóz Vopnafjörður.is Júlíus Ágúst
GAMLIR
|
||||||||||||||||||